Lars Lagerbäck missir báða framherjana sem spila í ensku úrvalsdeildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. mars 2018 16:00 Lars Lagerbäck. Vísir/Getty
Það eru forföll í norska landsliðshópnum hans Lars Lagerbäck fyrir vináttulandsleiki á móti Ástralíu og Albaníu seinna í þessum mánuði. Fyrrum landsliðsþjálfari Íslendinga er enn upptekinn við að reyna að koma norska landsliðinu aftur í hóp betri knattspyrnulandsliða Evrópu. Lars Lagerbäck var búinn að velja sóknarmennina Joshua King og Alexander Sörloth í hópinn sinn en þeir spila báðir í ensku úrvalsdeildinni og eru framtíðar framherjapar norska landsliðsins. Þeir King og Sörloth hafa nú báðir afboðað sig frá komandi verkefni og Lars Lagerbäck hefur valið í staðinn þá Ola Kamara frá LA Galaxy og Fredrik Gulbrandsen frá Red Bull Salzburg.Tre forfall i Norges tropp til kampene mot Australia og Albania: Joshua King, Alexander Sørloth og Haitam Aleesami. Nye spillere inn er Ola Kamara og Fredrik Gulbrandsen. — Fotballandslaget (@nff_landslag) March 18, 2018 Alexander Sörloth gat ekki spilað með Crystal Palace á móti Huddersfield í ensku úrvalsdeildinni um helgina en Joshua King spilaði hinsvegar allan leikinn með Bournemouth á móti West Bromwich Albion á laugardaginn. Sörloth er að glíma við vöðvatognun ef marka má orð knattspyrnustjórans Roy Hodgson. Hann meiddist á æfingu liðsins síðastliðinn fimmtudag og náði sér ekki fyrir leik helgarinnar. Joshua King hefur verið að glíma við meiðsli allt þetta tímabil og menn vilja augljóslega ekki taka neina áhættu með hann. Joshua King er 26 ára og hefur skorað 10 mörk í 31 leik fyrir Noreg. Á þessu tímabili hefur hann skorað 4 mörk í 26 deildarleikjum með Bournemouth. Alexander Sörloth er fjórum árum yngri og hefur skorað eitt mark í tólf landsleikjum. Hann á enn eftir að skora fyrir Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni en félagið keypti hann fyrir níu milljónir punda frá FC Midtjylland í lok janúar. Norska landsliðið mætir Ástralíu í Noregi á föstudag en heimsækir síðan Albaníu á mánudaginn.
Fótbolti Mest lesið Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Herinn kallaður á æfingu á HM Fótbolti Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Fótbolti Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Fótbolti Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Íslenski boltinn Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Fótbolti Fleiri fréttir Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-Stjarnan 2-1 | Ása Björg hetjan í framlengingu Ein regla fyrir Messi og önnur fyrir Themba Zwane Herinn kallaður á æfingu á HM Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Svisslendingar skoruðu fjögur mörk í lokin Tottenham borgar háa upphæð fyrir varnarmann Brighton HM-framherji fær ekki að koma til Kanada Mollee: „Ég hef fulla trú á liðinu“ Þróttur og Fram fengu heimaleik í undanúrslitunum María Eva hetja Þróttar þegar þær fóru í undanúrslitin Vítaspyrna í lokin bjargaði Suður-Afríku Neymar missir af öðrum HM-leik hjá Brössum Henry gagnrýnir Ronaldo harðlega Ljósmyndarar eyðilögðu þjóðsönginn fyrir Tuchel Spila æfingarleik á meðan HM stendur Gleði og gott veður á TM mótinu í Eyjum Leið Íslands í umspili fyrir HM í Brasilíu orðin ljós Maður dagsins á HM: Borinn saman við Essien Eiður lagði símanúmer Messi undir í veðmáli við Albert Stuðningsmenn baula á vatnspásurnar Liverpool sækir spænskan landsliðsmann Mörk í uppbótartíma og frammistaða liða kom á óvart Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Sjá meira