Vafasamt að flytja fiskvinnsluna út fyrir landsteinana Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 29. mars 2017 19:44 Íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum stendur til boða að flytja vinnsluna til útlanda. vísir/egill „
Það er augljóst að 1. gr. laga um stjórn fiskveiða [nr. 116/20016] á að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu. Ef farið verður að brjóta gegn því ákvæði þá er það vissulega áhugavert álitaefni.“ Þetta sagði Eyþór Björnsson, fiskistofustjóri í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sagði í viðtali við RÚV að íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum standi til boða að flytja vinnsluna til útlanda og nefndi Bretland, Austur-Evrópu og Asíu í því samhengi. Af þessu tilefni skrifaði Sveinn Andri Sveinsson, hæstaréttarlögmaður, færslu á Facebook, þar sem hann dró í efa lögmæti slíkra flutninga og hélt því fram að þeir færu í bága við 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Eyþór sagði að útflutningur á óunnum fiski hefði tíðkast í gegnum tíðina í nokkrum byggðalögum. Hann benti á að Vestmannaeyjar hafi til dæmis flutt út talsvert af fiski til Bretlandseyja. „Hins vegar hefur það trúlega ekki haft neikvæð áhrif á byggð í Vestmannaeyjum eða atvinnu þar. Þannig að væntanlega er það ekkert fordæmisgefandi í þessu sambandi.“Eyþór Björnsson forstjóri FiskistofuAð sögn Eyþórs er ekkert sem hindrar útflutning óunnins afla ef honum var landað hér í upphafi. „Reglan er þannig að afli sem veiddur er hér við Ísland skal landað hér og hann vigtaður hér. Ef útgerðir gera það þá geta þær í sjálfu sér flutt aflann út til vinnslu hvar sem er.“ Eyþór fullyrðir að ekki hafi enn reynt á ákvæði 1. gr. laga um stjórn fiskveiða. Hann telur þó að ef vinnslur yrðu fluttar úr landi, og þar með störf, þá gæti vissulega reynt á ákvæðið. Hann sagði að við slíkar aðstæður myndi inngrip stjórnvalda væntanlega koma til skoðunar. „[Í lagagreininni] er vísað til þess að þetta er sameign þjóðarinnar og vísað til þess að þeir sem fá að nýta þessa sameign okkar hafi ákveðnar skyldur við byggðarlög og atvinnuþróun í landinu,“ sagði Eyþór.
Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Fleiri fréttir Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Sjá meira