Valls yfirgefur Sósíalistaflokkinn 27. júní 2017 08:25 Manuel Valls var forsætisráðherra í ríkisstjórn Sósíalistans Francois Hollande forseta á árunum 2014 til 2016. Vísir/AFP
Fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, Manuel Valls, hefur sagt skilið við Sósíalistaflokkinn. Frá þessu greindi hann í viðtali við útvarpsstöðina RTL í morgun. Valls var forsætisráðherra í ríkisstjórn Sósíalistans Francois Hollande forseta á árunum 2014 til 2016 og segist nú ætla að styðja ríkisstjórn Emmanuel Macron Frakklandsforseta. Valls vann sæti á franska þinginu undir merkjum Sósíalistaflokksins í síðari umferð frönsku þingkosninganna sem fram fóru 18. júní. Sósíalistaflokkurinn beið afhroð í kosningunum þar sem hann tapaði rúmlega 250 þingsætum. Valls segir Sósíalistaflokkinn ekki hafa náð að endurnýja stefnu sína í öryggismálum eða á sviði réttinda verkafólks. Valls hafði í forsætisráðherratíð sinni lagt til breytingar í þessum málum, en var harðlega gagnrýndur, meðal annars af samflokksmönnum. Hann segist nú vilja vera hluti af meirihlutanum á þingi og hyggst greiða atkvæði með honum í atkvæðagreiðslu sem framundan er 4. júlí. „Það koma stundir þar sem maður verður að tala skýrt. Ég vil ganga inn í hjarta þessa meirihluta. Það er hluti af lífi mínu sem lýkur, ég yfirgef Sósíalistaflokkinn,“ segir Valls.
Mest lesið Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Erlent Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu Innlent „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Erlent Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Innlent Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis Erlent Fleiri fréttir Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Tala fallinna og særðra nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Sjá meira