Fleiri rauð spjöld en mörk hjá Balotelli í síðustu leikjum: "Sjáum ekki eftir því að fá hann“ 27. febrúar 2017 18:15 Mario Balotelli í leik með Nice. vísir/getty
Framherjinn skrautlegi Mario Balotelli á ekki sjö dagana sæla hjá franska 1. deildar liðinu Nice þessar vikurnar. Eftir flotta byrjun með Nice gengur honum ekkert að skora núna. Þegar Liverpool var endanlega búið að gefast upp á Balotelli, sem komst aldrei í gang á Anfield, voru Nice-menn fljótir að fá hann í Hreiðrið síðasta sumar og byrjunin lofaði góðu. Ítalski vandræðagemsinn skoraði sjö mörk í fyrstu sjö leikunum og var liðið lengi vel á toppnum í deildinni. Það er enn þá í titilbaráttunni, með 59 stig í þriðja sæti, þremur stigum á eftir toppliði Monaco þegar ellefu umferðir eru eftir. Nú er Balotelli aðeins búinn að skora eitt mark í síðustu sex leikjum en fá tvö rauð spjöld. Hann er því búinn að fá fleiri rauð spjöld en skora mörk í síðustu sex. „Það koma svona tímar hjá öllum leikmönnum,“ segir Jean-Pierre Rivere, forseti Nice, í viðtali við frönsku sjónvarpsstöðina Canal plus. „Hann byrjaði tímabilið vel en þessa dagana gengur ekki nógu vel. Vonandi fáum við aftur að sjá þann Mario sem byrjaði leiktíðina fyrir okkur.“ „Í heildina erum við ánægðir með hann. Hann er í góðu andlegu ástandi og við sjáum ekki eftir því að fá hann,“ segir Jean-Pierre Rivere.
Fótbolti Mest lesið Strákarnir okkar spila HM þar sem Íslendingar eru dáðir og dýrkaðir Handbolti Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Reglur sem landsbyggðarlið vildu og Þór þarf að greiða hundruð þúsunda Körfubolti „Ég er bara í sjokki ennþá“ Sport Besta sætið: Þarf að reka Óla? Sport Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti Rekinn úr íranska landsliðinu Fótbolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Janus fær ekki að leika listir sínar í Las Vegas Handbolti Fleiri fréttir Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt Rekinn úr íranska landsliðinu David og D-deildarleikmaður á meðal þeirra sem mæta Íslandi Mainoo og Maguire snúa aftur en enginn Alexander-Arnold FIFA refsar Ísraelum en þó aðeins með sekt Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Háttsettur meðlimur CAF fordæmir „viðurstyggilega“ ákvörðun Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Freyr stýrði Brann inn í undanúrslit bikarsins Nottingham Forest og Crystal Palace fóru bæði áfram Albert með stoðsendingu þegar Fiorentina fór áfram Foringinn fagnar endurkomu Norður-Kóreu á HM „Við sniðgöngum Bandaríkin en ekki HM“ Messi kominn í 900 mörk Sögulegur samningur Víkinga Samningur í höfn: Írar treysta Heimi fyrir EM á heimavelli Blindröðun í beinni: Sígó í stúkunni og sjúkur snúningur Kane Deilan leyst og spilað í Boston Mörkin í Meistaradeild: Sjáðu stóru liðin setja upp sýningu Vill ekki falla í sömu gryfju og Svíar Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur Ljóstruðu óvart upp um óvænt val Heimis Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real Missti næstum því fingur á móti Liverpool Sjá meira