Fékk símtal frá syninum sem hann hélt að hann hefði fylgt til grafar Stefán Ó. Jónssonu skrifar 25. júní 2017 17:41 Frank Kerrigan heldur á mynd af börnunum; John, Carole og Frank - sem eru öll enn á lífi. Vísir/AP
Karlmaður í Kaliforníu, sem hélt að hann hefði fylgt syni sínum til grafar, fékk símtal frá honum 11 dögum eftir útförina. Frá þessu er greint á vef Guardian þar sem segir að atvikið megi rekja til mistaka starfsfólks líkhúss bæjarins. Maður fannst látinn aftan við verslun í Fountain Valley í suðurhluta Kaliforníu þann 6. maí síðastliðinn. Frank J. Kerrigan segist hafa hringt í líkhúsið þar sem honum var tjáð að líkið væri af syni hans, Frank M. Kerrigan, sem búið hefur á götunni og á við geðræn vandamál að stríða. Þegar Kerrigan spurði hvort hann ætti að bera kennsl á líkið sagði starfsmaður líkhússins, ranglega, að fingraför gæfu til kynna að um son hans væri að ræða. „Þegar einhver segir mér að sonur minn sé látinn og að þau séu með fingraför, þá trúi ég þeim,“ segir Kerrigan í samtali við Guardian. „Ef ekki hefði verið fyrir fingraförin þá hefði ég farið í líkhúsið á stundinni.Tveggja milljóna útför Sex dögum síðar héldu fjölskyldan útför sem Frank eldri segir að hafi verið íburðamikil og kostað um 20 þúsund dali, rúmlega 2 milljónir króna. Við útförina leit hann ofan í kistuna og strauk hár mannsins sem þar lá, sannfærður um að það væri sonur hans. „Ég vissi ekki hvernig sonur minn myndi líta út,“ segir hann. Ellefu dögum síðar fékk Kerrigan símtal frá vini sínum. „Sonur þinn er á lífi,“ sagði vinur hans áður en hann rétti syninum símann. „Halló pabbi,“ sagði hann við föður sinn. Lögmaður fjölskyldunnar segir í frétt Guardian að starfsfólk líkhússins hafi ekki tekist að tengja fingraför hins látna við gögn í gagnagrunni lögreglunnar og hafi því reitt sig á gamalt ökuskírteini Kerrigans þegar borið var kennsl á líkið. Þegar fjölskyldan tilkynnti lögreglunni að Kerrigan væri enn á lífi var aftur látið reyna á fingraförin. Kom þá í ljós að þau tilheyrðu öðrum manni. Ekki hefur þó enn tekist að bera kennsl á líkið. Líkhúsið hefur ekki viljað tjá sig um málið.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira