Yfirmaður franska hersins hættir vegna niðurskurðar Samúel Karl Ólason skrifar 19. júlí 2017 08:46 Emmanuel Macron og Pierre de Villiers. Vísir/EPA
Yfirmaður hefafla Frakklands hefur sagt upp starfi sínu vegna deilna við Emmanuel Macron, forseta landsins, um niðurskurð. Ríkisstjórn Frakklands tilkynnti mikinn niðurskurð í síðustu viku, sem ætlað er að draga úr halla ríkissjóðs. Þá komu upp deilur á milli Macron og hershöfðingjans Pierre de Villiers. Villiers segist ekki lengur geta tryggt þann herafla sem að væri Frakklandi nauðsynlegur til að verja landið og fólkið. Hann sagðist hafa lengi reynt að ganga úr skugga um að herinn gæti unnið sífellt erfiðara starf innan þess fjárlagaramma sem í boði væri, en það væri ekki hægt lengur. Eftir tilkynningu ríkisstjórnar Macron fór Villiers á fund þingmanna og mótmælti niðurskurðinum, sem er um 850 milljónir evra (rúmir hundrað milljarðar króna), harðlega. „Ég læt ekki taka mig svona í bakaríið. Ég er kannski heimskur en ég veit þegar það er verið að spila með mig,“ sagði Villiers, samkvæmt Reuters. Macron svaraði fyrir sig með því að gera hershöfðingjanum ljóst að hann væri yfirmaður hans. „Ef yfirmaður heraflans og forsetinn eru ósammála um eitthvað, þá þarf yfirmaður heraflans að fara,“ sagði Macron, samkvæmt BBC.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Sjá meira