Ákærður fyrir að afhenda Kínverjum leyniskjöl Atli Ísleifsson skrifar 22. júní 2017 21:45 Samkvæmt bandarískum lögum gæti Mallory, sem talar reiprennandi kínversku, átt yfir höfði sér lífstíðardóm. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Kevin Mallory, fyrrverandi bandarískur embættismaður, hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að hafa afhent trúnaðargögn til útsendara kínverskra yfirvalda.BBC greinir frá því að samkvæmt dómsskjölum sé hinn sextugi Mallory sagður hafa ferðast til Shanghai í mars og apríl á þessu ári. Á flugvellinum í Chicago á leiðinni heim hafi hann svo ekki gert grein fyrir samtals 16.500 Bandaríkjadölum í reiðufé, um 1,7 milljónum króna, sem hann hafði komið fyrir í handfarangri. Samkvæmt bandarískum lögum gæti Mallory, sem talar reiprennandi kínversku, átt yfir höfði sér lífstíðardóm. Hann mætti fyrir dómara í dag. Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur greint frá því að Mallory hafi verið með umfangsmikinn aðgang að trúnaðargögnum bandarískra stjórnvalda á þeim tíma sem hann starfaði hjá hinu opinbera. Mallory sagði við starfsmenn FBI í maí síðastliðinn að hann hafi fundað með starfsmanni Félagsvísindaráðs Shanghai (SASS) þegar hann heimsótti borgina í vor, en FBI hefur frá árinu 2014 talið kínverska njósnara segjast tengjast SASS til að villa á sér heimildir.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira