Viðar Örn raðar inn mörkum þar sem er einna erfiðast að skora í Evrópu Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. apríl 2017 15:15 Viðar Örn skorar og skorar. vísir/afp
Fótboltaáhugamenn sem vilja sjá markaleiki ættu að kaupa sér áskrift að svissnesku úrvalsdeildinni nú eða þeirri sænsku. Þeir ættu aftur á móti að halda sér frá efstu deildunum í Rússlandi og Ísrael. Í nýjustu úttekt fótboltarannsóknarhópsins CIES Football Observatory er farið yfir hvar er mest skorað í 31 bestu deild Evrópu. Meðaltalið var reiknað út frá öllum leikjum spiluðum í deildunum frá 1. júlí 2016 til 31. mars 2017. Þar kemur fram að mesta fjörið er í Sviss þar sem 416 mörk voru skoruð í 126 leikjum á rannsóknartímabilinu eða 3,33 mörk í leik. Sænska úrvalsdeildin er í öðru sæti með 3,01 mörk í leik en 434 mörk voru skoruð í 144 leikjum í efstu deild Svíþjóðar á meðan rannsóknin stóð yfir. Spænska deildin er efst þeirra fimm stóru en hún er í þriðja sæti á listanum með 2,90 mörk í leik en enska úrvalsdeildin í sjötta sæti með 2,84 mörk í leik. Ítalía kemur þar á eftir í sjöunda sæti með 2,84 mörk í leik en Frakkarnir skora aðeins 2,60 mörk í leik. Franska 1. deildin er í 17. sæti. Leiðinlegasta deildin af þessum 31 er sú rússneska en þar var aðeins skorað 1,99 mark í leik á meðan rannsóknin var gerð. Rússarnir eru þeir einu sem ná ekki að skora að minnsta kosti tvö mörk í leik. Næstleiðinlegasta deildin ef horft er aðeins til markafjölda er úrvalsdeildin í Ísrael en þar voru skoruð 388 mörk í 182 leikjum eða 2,13 mörk í leik yfir þetta tímabil frá 1. júlí 2016 til 31. mars 2017. Íslenski landsliðsframherjinn Viðar Örn Kjartansson skoraði fimmtán af þessum 318 mörkum en hann er markahæsti leikmaður ísraelsku úrvalsdeildarinnar. Selfyssingurinn sem getur ekki hætt að skora er því að raða inn mörkum í þeirri deild Evrópu sem einna erfiðast er að skora í.Hér má sjá allan listann.
Fótbolti Mest lesið Infantino hættir við allt saman Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Fótbolti Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Fótbolti Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Fótbolti Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Enski boltinn Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Íslenski boltinn Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Fótbolti Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Golf Fleiri fréttir Infantino hættir við allt saman Casemiro mættur til að hjálpa „guði fótboltans“ að vinna Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Konurnar fyrsta fórnarlambið eftir útspil Infantino Arnór Gauti fékk sínar fyrstu mínútur í Króatíu „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Heiðdís hjálpar Söru Björk og félögum í Haukum Eru of fáar konur að starfa fyrir karlalið í knattspyrnu? Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Ancelotti viðurkennir mistök í drykkjarhléi gegn Noregi á HM Real Madrid klófestir besta unga leikmann spænsku deildarinnar Þór sækir fyrirliða frá Spáni Leikbanni Mudryk aflétt Slot á leið til Sádi-Arabíu? Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Kallar eftir bættum starfsháttum hjá FIFA: „Mikil samstaða“ Sjáðu Tryggva stíga trylltan dans, vítakeppni Stjörnunnar og mark Vestra Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Helsti ráðgjafi Infantino hættir í mótmælaskyni Frá Keflavík og beint á Parken: „Draumur flestra ungra stráka“ „Mig dreymdi alla daga um að spila með Messi“ Asíuþjóðirnar taka undir áhyggjur af áætlunum FIFA Palmer steinsvaf meðan enska landsliðið spilaði á HM Franco Baresi er látinn FIFA heldur settri stefnu Lítið af möguleikum fyrir Liverpool í vörninni Stones skrifar undir hjá ítölsku meisturunum Leikmenn sem gerast sekir um mismunun fá tíu leikja bann Er ekki bjartsýnn fyrir framtíð Newcastle Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir dramatíska framlengingu og vítaspyrnukeppni Sjá meira