Forsætisráðherra Póllands segir af sér Atli Ísleifsson skrifar 8. desember 2017 09:47 Hin 54 ára Beata Szydlo hefur verið einn vinsælasti stjórnmálamaður Póllands á síðustu árum. Vísir/AFP
Beata Szydlo, forsætisráðherra Póllands, tilkynnti í gærkvöldi um afsögn sína, nokkrum klukkustundum eftir að hafa staðið af sér vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á pólska þinginu. Fjármálaráðherrann Mateusz Morawiecki mun taka við embætti forsætisráðherra landsins. Fréttaritari BBC segir að hávær orðrómur hafi að undanförnu verið uppi um að Jaroslaw Kaczynski, leiðtogi stjórnarflokksins Laga og réttlætis (PiS), vildi skipta um mann í brúnni. Var rætt um að Kaczynski vildi annan til að leiða flokkinn fram að næstu þingkosningum sem fyrirhugaðar eru að tveimur árum liðnum.Mateusz Morawiecki hefur gegnt embætti fjármálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Póllands síðustu tvö árin.Vísir/AFPYfirgnæfandi meirihluti pólskra þingmanna greiddu atkvæði gegn vantrauststillögunni. Þrátt fyrir niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar greindi Beata Mazurek, talsmaður Laga og réttlætis, frá því í gærkvöldi að miðstjórn flokksins hafi tilnefnt Morawiecki sem nýjan forsætisráðherra. Hin 54 ára Szydlo hefur verið einn vinsælasti stjórnmálamaður Póllands á síðustu árum. Hún tók við embætti forsætisráðherra árið 2015. Morawiecki hóf þátttöku í stjórnmálum árið 2015, en hafði áður starfað innan bankageirans. Auk þess að gegna embætti fjármálaráðherra var hann aðstoðarforsætisráðherra landsins. Pólska þingið mun kjósa um Morawiecki í næstu viku, en vegna mikils þingstyrks PiS er einungis um formsatriði að ræða.
Mest lesið „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Erlent Sjö handteknir í tengslum við meiriháttar líkamsárás Innlent „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Innlent Eins og ef einhver myndi hella vatni yfir tölvu Innlent Umdeildir leikir í sumarbúðum: „Það eru sem betur fer breyttir tímar“ Innlent Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Erlent Fyrri umræðu um þjóðaratkvæði lokið Innlent Loka fyrir umferð til að rannsaka banaslys Innlent Fauk í Kristrúnu í fyrirspurnartíma Innlent Fleiri fréttir „Ég held að ég verði þess heiðurs aðnjótandi að taka Kúbu“ Árás gerð á sendiráð Bandaríkjanna í Baghdad Starfsmannastjóri Trumps greinist með krabbamein Bandamenn taka fálega í aðstoðarkröfur Trumps Gengst við kókaínneyslu rétt fyrir kosningar Fjárhættuspilarar hóta blaðamanni lífláti Vilja tækni og peninga fyrir aðstoð gegn írönskum drónum Frost í kolefnisföngun í Svíþjóð Trump hefur í hótunum við bandamenn vegna Hormuz-sunds Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Rýnt í kosningarnar í Færeyjum: Frændur slást um lögmannsstólinn John Alford fannst látinn í fangelsinu Skoða möguleikann á að farga kolefni undir Eystrasalti Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Kvarnast upp úr grænlensku landsstjórninni Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Svíar stöðvuðu annað skuggaskip Tvær misheppnaðar hryðjuverkaárásir á einum degi Telur að Bandaríkjastjórn vilji sundra Evrópu Franskur hermaður féll í drónaárás í Írak Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Bandarísk herflugvél fórst í Írak Stofnandi Noma hættir í skugga ofbeldisásakana Khamenei heitir því að halda Hormússundi lokuðu Sjá meira