Uggandi eftir árekstur dróna og farþegavélar Nína Hjördís Þorkelsdóttir skrifar 17. október 2017 23:31 Drónar geta ógnað flugöryggi. vísir/getty
Yfirvöld í Kanada eru uggandi eftir árekstur dróna og farþegaflugvélar sem átti sér stað í síðustu viku. Flugvélin var á leið til borgarinnar Quebec þegar áreksturinn varð en sex farþegar voru um borð. New York Times greinir frá. Engan sakaði en samgönguráðherra Kanada, Marc Garneau, segist líta málið alvarlegum augum. „Þetta hefði ekki átt að gerast, þessi dróni átti ekki að vera þarna,“ sagði hann á blaðamannafundi á sunnudaginn var. Hann bætti við að ef flygildið hefði skollið á hreyfli vélarinnar, eða í framrúðu hennar með þeim afleiðingum að flugstjóri hennar hefði slasast alvarlega, þá hefðu afleiðingarnar getað orðið gríðarlega alvarlegar. Dróninn flaug í 1500 feta hæð, sem er fimm sinnum hærra en reglugerðir í Kanada heimila. Að auki er óheimilt að fljúga ómönnuðum loftförum innan 5,5 kílómetra radíuss frá flugvöllum. Reglurnar voru settar fyrr á árinu og varðar brot á þeim fjársektum og/eða fangelsisvist. Þetta er í fyrsta sinn sem árekstur verður milli flygildis og farþegavélar í landinu. Yfirvöld segja þó að vandamálið hafi verið til staðar í einhvern tíma. „Í hverri viku, næstum því daglega, sjáum við tilkynningar frá flugstjórum um dróna,“ sagði Greg McConnell, formaður samtaka flugstjóra hjá hinu opinbera í Kanada. Hann bætti við að hann hefði „beðið“ eftir því að þetta gerðist. Drónar hafa flogið ískyggilega nálægt mönnuðum loftförum hér á landi Vísindamenn við Tækniháskóla Virginíu sýndu fram á það fyrir tveimur árum síðan að fjögurra kílóa fjögurra spaða flygildi getur á örskotstundu eyðilagt hreyfil. Miðað var við þotuhreyfil sem var tæplega þrír metrar að þvermáli. Ekki hafa verið gerðar rannsóknir um áhrif flygilda á stærri hreyfla. Hér á landi eru í gildi reglur um notkun dróna en samkvæmt þeim er óheimilt að fljúga slíkum loftförum innan 1,5 km frá svæðamörkum flugvalla, eða 2 km frá svæðamörkum áætlunarflugvalla, án samþykkis frá flugumferðarþjónustu. Þá má ekki fljúga dróna í meira en 130 metra hæð án sérstaks leyfis frá Samgöngustofu. Hætta hefur skapast í einhverjum tilvikum hér á landi vegna nálægðar dróna við mönnuð loftför en í janúar á þessu ári var dróna flogið nálægt þyrlu sem var á leið til lendingar á Reykjavíkurflugvelli.
Mest lesið Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Rauðar viðvaranir í Bretlandi vegna hita Veður Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Fleiri fréttir Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Sjá meira