Hálfdan kjörinn formaður Sjómannadagsráðs Atli Ísleifsson skrifar 16. maí 2017 14:51 Hálfdán Henrýsson og Guðmundur Hallvarðsson. Sjómannadagsráð
Hálfdan Henrýsson var kjörinn nýr formaður Sjómannadagsráðs á aðalfundi síðastliðinn fimmtudag. Hann tekur við embættinu af Guðmundi Hallvarðssyni sem átt hefur sæti í stjórn ráðsins í 33 ár, þar af tæpan aldarfjórðung sem formaður. Guðmundur gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í tilkynningu segir að Hálfdan þekki vel til starfa Sjómannadagsráðs en hann settist í stjórn þess árið 1993. Hafi hann gegnt stöðu ritara, gjaldkera og embætti varaformanns. Á aðalfundinum voru Guðmundi þökkuð góð störf í þágu Sjómannadagsráðs og óskað allra heilla í framtíðinni. Haft er eftir Hálfdáni að Guðmundur hafi haft mikil áhrif á starfsemi Sjómannadagsráðs á löngum og farsælum ferli sínum í stjórn ráðsins, ekki síst þau ár sem hann hefur gegnt formannsstarfi. „Sjómannadagsráð hefur þróast mikið á þessum árum og starfsemin vaxið að öllu umfangi. Í raun má segja að starfsemi Sjómannadagsráðs í heild sé ekki minni í sniðum en hjá meðalstóru fyrirtæki í atvinnulífi landsmanna enda starfa á vegum þess ríflega 900 hundruð manns hjá dótturfélögum þess, aðallega á Hrafnistuheimilunum sex á höfuðborgarsvæðinu, en Hrafnista er stærsti veitandi öldrunarþjónustu á Íslandi,“ segir Hálfdán. Í tilkynningunni segir að síðasta embættisverk Guðmundar hafi verið undirritun samninga og viljayfirlýsingar við Reykjavíkurborg um byggingu og rekstur nýs hjúkrunarheimilis, þjónustumiðstöðvar og leiguíbúða fyrir aldraða við Sléttuveg í Fossvogsdal. „Á hjúkrunarheimilinu verður fyrirkomulag svipað því sem er í dag á Hrafnistu-heimilunum. Byggingarframkvæmdir hefjast síðar á þessu ári og kemur það því í hlut nýkjörins formanns að fylgja verkefninu eftir, enda gert ráð fyrir að hjúkrunarheimilið taki til starfa 2019. Í beinu framhaldi hefjast framkvæmdir við þjónustumiðstöðina, sem Sjómannadagsráð mun byggja, eiga og reka, auk þriggja fjölbýlishúsa með um 125 leiguíbúðum í eigu Naustavarar, dótturfyrirtækis Sjómannadagsráðs.“
Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Fleiri fréttir Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Sjá meira