Aldrei fleiri gómaðir undir áhrifum Samúel Karl Ólason skrifar 17. maí 2017 16:03 "Sérstaklega fjölgaði brotum þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem skýrir fjölgun fíkniefnabrota að einhverju leyti.“ Vísir/Getty
Akstur undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna hefur náð nýjum hæðum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að aldrei hafi fleiri verið grunaðir um slíkan akstur en nú í apríl. Þetta kemur fram í nýjustu afbrotatölfræðiskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem birt var í dag. Alls bárust lögreglunni 655 tilkynningar um hegningarlagabrot í apríl. Þá fækkaði þjófnuðum, kynferðisbrotum og ofbeldisbrotum gagnvart lögregluþjónum miðað við meðalfjölda síðustu sex mánaða. Hins vegar fjölgaði fíkniefna- og umferðarbrotum nokkuð í mánuðinum. „Sérstaklega fjölgaði brotum þar sem ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna, sem skýrir fjölgun fíkniefnabrota að einhverju leyti. Í apríl voru skráð 144 brot þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og 105 brot þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. Skráð brot vegna aksturs undir áhrifum hafa ekki verið fleiri eftir að ný lög tóku gildi árið 2006, sem breyttu verklagi lögreglu í þessum málum. „Þessi mikla fjölgun brota er afrakstur sérstaks átaks sem farið var í á varðsvæði lögreglustöðvar 1, sem nær frá Seltjarnarnesi að Laugardalnum.“
Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Fleiri fréttir Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Byrja ekki að sekta á morgun Bein útsending: Alþjóðasamvinna á krossgötum Þörf eftir sértæku húsnæði fyrir yngri en 25 muni „fara verulega vaxandi“ Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Gæti sektað flugstjóra um allt að átta milljónir króna Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Sjá meira