Rauf skilorð með því að stela mat fyrir þrjú þúsund krónur og skalla starfsmann Birgir Olgeirsson skrifar 28. mars 2017 16:11 Maðurinn sagði að um óviljaverk hefði verið að ræða sem hann sæi eftir. Vísir/GVA
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann til sex mánaða fangelsisvistar fyrir að hafa stolið matvöru fyrir rúmlega þrjú þúsund krónur og skallað starfsmanna verslunarinnar sem veitti honum eftirför. Atvikið átti sér stað að kvöldi til árið 2015 en nánari dagsetning er ekki tilgreind í dóminum. Lögreglan hafði verið kvödd á vettvang en þegar hún kom þangað var þjófurinn handtekinn á staðnum. Starfsmaðurinn hafði reynt að stöðva för mannsins þegar hann gekk með vörur fram hjá kassa án þess að greiða fyrir þær. Starfsmaðurinn sagði hinn dæmda hafa byrjað að öskra og sagst hafa skilað öllum vörunum og tekið því næst á rás. Starfsmaðurinn ákvað að veita manninum eftirför en hafi þá verið skallaður af manninum og hlaut við það blóðnasir og skrámu á nefi. Sá sem var dæmdur í málinu viðurkenndi fyrir dómi að hafa stolið matvöru. Hann sagðist hafa verið ölvaður og hálfruglaður. Hann sagðist hafa játað verknaðinn fyrir starfsmanninum og viljað fara. Sagðist hann hafa verið nýkominn úr afplánun þegar þetta átti sér stað og því ekki viljað afskipti lögreglu. Hann hafi hins vegar verið eltur af starfsmönnum verslunarinnar. Þegar einn þeirra greip í hann hafi hann streist á móti. Hann kannaðist ekki við að hafa skallað starfsmanninn en sagðist hafa hnykkt til höfðinu sem þá hafi lent á manninum. Hann sagðist hafa beðist afsökunar og sagði að um óviljaverk hefði verið að ræða sem hann sæi eftir. Héraðsdómur var á því að maðurinn hefði gerst sekur um bæði þjófnað og líkamsárás í þessu máli. Við refsiákvörðun var litið til þess að hann ætti sakaferil sem næði aftur til ársins 1996 en síðan þá hefur hann fjórtán sinnum verið dæmdur til refsingar, nú síðast á árinu 2014. Í flestum tilvikum var hann sakfelldur fyrir auðgunarbrot en einnig fyrir rán, brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni og umferðarlagabrot. Hann hafði ekki áður verið sakfelldur fyrir líkamsárás og var til þess litið. Hann var á skilorði þegar hann gerðist sekur um þetta athæfi og var því refsing hans ákveðin sex mánaða fangelsisvist.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Fleiri fréttir Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu Sjá meira