Segir að Terry hafi fengið ný hnífapör á hverjum degi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. febrúar 2017 12:00 John Terry er kóngurinn í Chelsea og hefur verið um árabil. Vísir/Getty
Conor Clifford, írskur miðjumaður sem var á mála hjá Chelsea sem táningur, segir að John Terry hafi fengið konunglega meðferð hjá félaginu á meðan hann var þar. Clifford gekk í raðir Chelsea sextán ára og var hjá því næstu sex árin. Hann spilaði aldrei með aðalliði Chelsea og var lánaður til fimm mismunandi félaga á samningstímanum. Clifford er í dag nýgenginn til liðs við Dundalk í heimalandinu en liðið sló í gegn í Evrópudeild UEFA í haust. Hér á landi var vel fylgst með liðinu eftir að það sló FH úr leik í forkeppninni. Hann segir að hann hafi verið undir verndarvæng Frank Lampard hjá félaginu og leitað ráða hjá honum margsinnis. Þá hafi hann einnig æft reglulega með aðalliði félagsins þegar Carlo Ancelotti var stjóri Chelsea.Clifford var fyrirliði unglingaliðs Chelsea sem vann bikarmeistararatitil árið 2010.Vísir/Getty„En John Terry var aðalmaðurinn á svæðinu. Hann var kóngurinn,“ sagði Clifford í viðtali við írska ríkissjónvarpið. „Hann fékk meira að segja glæný hnífapör í hvert einasta skipti sem við borðuðum hádegismat.“ Clifford naut þess að vera hjá Chelsea á sínum tíma en er nú byrjaður að einbeita sér að nýjum áskorunum með Dundalk, en nýtt tímabil í írsku deildinni hefst á föstudag. Dundalk hefur unnið írska meistaratitilinn þrjú ár í röð og keppir í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í sumar á nýjan leik, rétt eins og FH-ingar.
Enski boltinn Mest lesið Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Enski boltinn Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Labbaði í fjórtán tíma á keppnisstað og vann síðan 63 km ofurhlaup Sport UFC-bardagi í Hvíta húsinu á þjóðhátíðardaginn Sport Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum Íslenski boltinn Guðmundur í grænt Íslenski boltinn Calvert-Lewin á leið til Leeds Enski boltinn Willum lagði upp sigurmark Birmingham Enski boltinn Fókus á bolta ekki bullur: „Á ekki að sjást í kringum fótboltaleiki“ Fótbolti Dagskráin í dag: Blikar berjast í Evrópu, N1-mótið og upphitun fyrir enska Sport Fleiri fréttir Fókus á bolta ekki bullur: „Á ekki að sjást í kringum fótboltaleiki“ Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Guðmundur í grænt Willum lagði upp sigurmark Birmingham Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum PSG kom til baka og vann Ofurbikarinn í vítakeppni Uppgjörið: Valur - Stjarnan 4-2 | Rhodes með þrennu í seinni hálfleik Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Brøndby brennir skipin: „Verðum að sækja og svo verðum við að sækja meira“ Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Fyrirmenni fótboltans á Norðurlöndum mæta til Íslands í vikunni Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Spáir Bröndby sigri í einvíginu á móti Víkingum „Er að koma inn í hlutverk sem ég veit að ég er góð í“ „Einhver vildi losna við mig“ Gullsending Sveindísar Jane valin sú besta Enska augnablikið: Hefði gengið af Hjálmari dauðum Konunum fórnað í peningavandræðum karlaliðs Barcelona Hent út úr Tottenham liðinu fyrir óstundvísi Sjá meira