Oscar: Peningar ekki eina ástæða þess að ég fór til Kína Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. janúar 2017 21:15 Oscar fékk höfðinglegar móttökur við komuna til Shanghai. vísir/getty
Brasilíumaðurinn Oscar segir að peningar séu ekki eina ástæða þess að hann ákvað að fara frá Chelsea og til kínverska liðsins Shanghai SIPG. Félagskiptin vöktu mikla athygli enda Oscar aðeins 25 ára gamall. Shanghai greiddi 60 milljónir punda fyrir brasilíska miðjumanninn sem fær 400.000 pund í vikulaun í Kína. Oscar hefur verið gagnrýndur fyrir að láta glepjast af Kínagullinu en hann segir að möguleikinn á meiri spilatíma hafi einnig haft sitt að segja. „Ég fékk tilboð frá Kína í fyrra en það fór ekkert lengra. Núna hlustaði ég á tilboð þeirra og heillaðist,“ sagði Oscar í samtali við FourFourTwo. „Í hvert sinn sem ég talaði við þá komu þeir með betra tilboð. Fjárhagslegi ávinningurinn var mikilvægur en þetta snerist ekki bara um peninga. Ég fer ekki einn, fjölskyldan fer með mér svo borgin þurfti að vera fín. Ég spilaði ekki mikið fyrir Chelsea svo ég tók tækifærinu sem bauðst fegins hendi.“ Þrátt fyrir að Oscar hafi ekki spilað mikið fyrir Chelsea undir það síðasta segir hann að það hafi verið erfitt að kveðja Lundúnaliðið. „Það var mjög erfitt að fara. Ég spilaði þarna í fimm ár og á svo margar góðar minningar. Ég ber mikla virðingu fyrir stuðningsmönnunum og liðinu,“ sagði Oscar sem ber ekki neinn kala til Antonios Conte, knattspyrnustjóra Chelsea. „Conte er fínn náungi. Hann virti ákvörðun mína og skildi að ég vildi spila meira. Þegar hann kom til Chelsea sagði ég honum að það væru félög sem hefðu áhuga á mér. Hann sagði að ég væri inni í áætlunum hans svo ég ákvað að halda kyrru fyrir. En hlutirnir breyttust.“
Fótbolti Mest lesið „Eins og stúdentsprófin í MR“ Íslenski boltinn Tatum bættist óvænt við meiðslalistann fyrir oddaleikinn Körfubolti Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Enski boltinn „Það fer í taugarnar á mér“ Íslenski boltinn Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn Formúla 1 Sindri stígur fyrsta skrefið í átt að úrvalsdeild Körfubolti Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð Íslenski boltinn Logi fagnaði stórsigri gegn Galatasaray Fótbolti Uppgjörið: Keflavík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn Körfubolti „Ingason sýningin“ í öruggum sigri Brann Fótbolti Fleiri fréttir Hélt á lofti og lofaði Newcastle að Sádarnir myndu ekki selja Valur - KR 1-4 | Grýlan dauð „Eins og stúdentsprófin í MR“ „Það fer í taugarnar á mér“ Espanyol getur gert Barcelona að meisturum á morgun „Erum með montréttinn á Akureyri“ Valgeir sá Schalke fara upp í úrvalsdeild „Gerist eiginlega ekki betra“ Logi fagnaði stórsigri gegn Galatasaray „Ingason sýningin“ í öruggum sigri Brann Bayern og PSG hvíldu sig vel fyrir seinni leikinn Benóný lauk deildinni á marki og fer í umspilið Skytturnar með sex stiga forystu á toppnum Tap West Ham gefur Tottenham von Þór Ak. - KA 0-1 | Hallgrímur tryggði sætan sigur Lögðu Arsenal og fara í úrslit Meistaradeildarinnar Afar óvænt tap Íslendingaliðsins Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina „Aðeins loðað við okkur að mikið sé gert úr öllu“ „Held að Valur sæki engan gríðarlegan styrk í það“ Sjáðu mörkin síðast þegar Þór og KA áttust við Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Guardiola léttur: „Slakir þjálfarar og skítaleikmenn“ Laun Infantino meira en þrefaldast á áratug Þróttur og HK á toppnum Laglegt hjá Leeds sem forðast fall Langþráður og lífsnauðsynlegur sigur Þóris og félaga Sjáðu mörkin úr endurkomunni í Eyjum Skellt í lás eftir afhroðið Njarðvíkingar rændir marki og þurfa að bíða lengur eftir sigri Sjá meira