Herrera: City skapaði ekki mikið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. desember 2017 16:15 Ander Herrera hefur leikið með Manchester United undanfarin þrjú ár. vísir/getty
Ander Herrera sagði það ótrúlegt að Michael Oliver hafi ekki dæmt vítaspyrnu er hann féll í teignum í stórleik Manchester-liðanna um helgina. Í stöðunni 2-1 fór Herrera niður innan vítateigs City eftir viðskipti við Nicolas Otamendi. Oliver gaf Herrera gult spjald fyrir leikaraskap. „Hann bjóst ekki við því að ná í boltann. Ég snerti boltann fyrst og hann trampaði á fætinum á mér. Ég held allir hafi séð það. Allir geta gert mistök, líka dómarar,“ sagði Herrera.Sjá einnig: Allar stóru dómaraákvarðanir stórleikjanna réttar United tapaði leiknum, en öll mörk leiksins komu eftir mistök í vörn andstæðingsins. „Það er erfitt að tapa eins og við gerðum því við töpuðum á tveimur óheppnismörkum. Fyrir utan það fannst mér þeir ekki skapa sér mikið,“ sagði Spánverjinn. „Þegar þú spilar á móti City þá býstu við því að eiga í vandræðum þegar þeir eru með boltann. Við vorum ekki í of miklum vandræðum með þá, sem er ástæða þess að við erum enn vonsviknari.“ Herrera er nú kominn með fjögur gul spjöld á tímabilinu, einu spjaldi frá leikbanni. Þar sem ekki er hægt að áfrýja gulum spjöldum þarf Herrera að passa sig í næstu sex leikjum fram að áramótum til að forðast að fara í bann. „Ég átti ekki skilið að fá gult spjald. Í fyrri hálfleik voru eins kringumstæður með Gabriel Jesus og Sane og þeir fengu ekki gult spjald.“ „Á Spáni getur þú áfrýjað öllu sem er ósanngjarnt. Þetta er eitt atriði þar sem enska úrvalsdeildin gæti bætt sig. Að mínu mati er skipulagið það besta í heimi, en það er leiðinlegt að geta ekki áfrýjað gulum spjöldum,“ sagði Ander Herrera. United er nú 11 stigum á eftir grönnum sínum í City. Liðið fær Bournemouth í heimsókn á Old Trafford á miðvikudag.
Enski boltinn Mest lesið Guðmundur Oddsson látinn Golf Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fyrsti dagur MÍ: Öruggt hjá Sindra og fimmtán ára vann fjögur hundrað metra hlaupið Sport Lebron fer til Fíladelfíu Körfubolti „Búin að slá út ansi öflug lið“ Íslenski boltinn Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp Fótbolti Hættir með landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Entist skammt í þjálfarastólnum Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Chelsea að hreppa Lacroix Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Haaland dýrastur í sögu Fantasy Ætla að bjóða sjötíu milljónir punda í fyrirliða Newcastle Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Okkur vantar klárlega kantmann“ Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United Sjá meira