Erdoğan hótaði að hálshöggva svikara í ræðum sínum í gær Ingvar Þór Björnsson skrifar 16. júlí 2017 15:42 Tugþúsundir komu saman í Istanbúl fyrir fyrstu ræðu forsetans sem hann hélt á Bosphorus brúnni. Önnur ræða hans var haldin í Ankara við þinghúsið. AFP
Recap Tayyip Erdogan, Tyrklandsforseti, styður enn dauðarefsingar fyrir þá sem tóku þátt í valdaránstilrauninni í Tyrklandi fyrir ári. Kom þetta fram í ræðum hans í gær en fjölmargir viðburðir voru haldnir víðs vegar í Tyrklandi til að minnast þess að ár var liðið frá misheppnaðri valdaránstilraun þar í landi. The Guardian greinir frá. Tugþúsundir komu saman í Istanbúl fyrir fyrstu ræðu forsetans sem hann hélt á Bosphorus brúnni. Önnur ræða hans var haldin í Ankara við þinghúsið. Mikið var um trúarlega tilvísanir í ræðum hans. Athöfnin við þingið í gær byrjaði á upplestri úr Kóraninum en rík áhersla var á textabrot um svik, píslarvætti og mikilvægi þess að standa upp í hárinu á óvinum sínum. Sagði hann að skipuleggjendur valdaránstilraunarinnar væru trúleysingjar og nýtti hann einnig hvert tækifæri til að gagnrýna harðlega stjórnarandstöðuflokkana. Hann fór ekki fögrum orðum um meinta óvini Tyrklands:„Öflugustu vopn landsins voru notuð miskunnarlaust af óvinum þjóðarinnar. Þjóðin okkar hafði einungis fánann og trúnna.“ Erdogan líkti valdaránstilrauninni við aðrar baráttur í sögu Tyrklands og þá sérstaklega sjálfstæðisbaráttu landsins.Vilja dauðarefsingar Þá benti hann enn einu sinni á að möguleiki væri að taka aftur upp dauðarefsingar en hluti mannfjöldans hrópaði í hvívetna: „Við viljum dauðarefsingar“. Forsetinn hefur áður sagt að hann myndi samþykkja löggjöf um að taka upp dauðarefsingar ef þingið myndi leggja fram frumvarp þess efnis.Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, varaði við því í grein sem birtist í blaðinu „Bild am Sonntag" á sunnudaginn fyrir viku að ef Tyrklandi myndi taka upp dauðarefsingar myndi það loka á aðildarviðræður Tyrklands við Evrópusambandið. Talaði hann einnig um að Tyrkland þyrfti að færa sig nær evrópskum gildum, ekki fjær.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Sjá meira