Norður-Kóreu „verði að stöðva“ Stefán Ó. Jónsson skrifar 1. apríl 2017 08:22 Mattis og Fallon á fundi þeirra í gær. Vísir/Getty
Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Jim Mattis, segir að stjórnvöld í Norður-Kóreu „verði að stöðva“ enda hagi þau sér með óábyrgum hætti. Að hans mati ógna eldflaugatilraunir þeirra Vesturheimi þannig að ekki verður hjá því litið mikið lengur. Þetta kom fram í máli Mattis á blaðamannafundi með breska varnarmálaráðherranum Michael Fallon í gær. Á fundinum var Mattis minntur á að þegar hann gegndi stöðu hershöfðinga í Austurlöndum nær hafi hann sagt Íran vera stærstu ógnina við Bandaríkin. Aðspurður um hvernig hann hyggðist taka á Írönum sem nýskipaður varnarmálaráðherra sagði Mattis að af stjórnvöldum í Teheran stafaði vissulega ógn en var fljótur að skipta um umræðuefni og fordæma Norður-Kóreumenn og eldflaugatilraunir þeirra.Sjá: Lætur ekki misheppnaðar eldflaugatilraunir á sig fá Mattis segir hið einangra, kommúníska ríki ógna heimsfriði enda styttist óðfluga í að það búi yfir eldflaugum sem geti borið sprengjur allt að vesturströnd Bandaríkjanna. Varnarmálaráðherrann sagði að nú væri unnið eftir diplómatískum leiðum til að koma í veg fyrir að þessi þróun haldi áfram og að Bandaríkin reyni að fá fleiri að borðinu í þeim efnum. Eins og staðan er hagi stjórnvöld í Norður-Kóreu sér þó glannalega og „það verður að stöðva,“ sagði Mattis á fundinum. Hann bætti þó við að hann teldi Írani enn ógna stöðugleika í Austurlöndum nær en eftir að hann tók við embætti varnarmálaráðherra hafi sjóndeildarhringur hans víkkað. Ögranir Norður-Kóreu séu brýnna úrlausnarefni.
Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira