Lögreglan í Ástralíu starfrækti eina stærstu barnaníðingsvefsíðu heims Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 7. október 2017 20:19 Lögreglan tók yfir starfsemi síðunnar eftir að stofnandi hennar var handtekinn fyrir að nauðga fjögurra ára gamalli stúlku. Vísir/Getty
Lögreglan í Ástralíu starfrækti eina stærstu barnaníðingsvefsíðu sem er að finna á myrkranetinu (e. dark web) í næstum því heilt ár. Í aðgerðinni, sem var háleynileg og leiddi til handtaka víða um heim, þóttist lögreglan vera stofnandi síðunnar. Um var að ræða síðu sem heitir Childs Play og var vefur þar sem barnaníðingar og fólk með barnagirnd gat átt í samskiptum. Þetta kemur fram í umfjöllun norska blaðsins Verdens Gang sem greindi frá aðgerðinni eftir að hafa fylgst með síðunni svo mánuðum skipti. Rannsókn VG leiddi blaðamennina á skrifstofur lögreglunnar í Queensland í Ástralíu á fund starfshópsins Argo sem sérhæfir sig í málum er varða misnotkun á börnum. Þeir vissu þó ekki að þeir hefðu rekist á viðkvæma og háleynilega lögregluaðgerð.Stofnandinn handtekinn fyrir að nauðga barni Argos hafði tekið yfir starfsemi Childs Play þremur mánuðum áður, í september árið 2016, villt á sér heimildir sem stjórnandi síðunnar eftir að hann var handtekin í Bandaríkjunum fyrir að nauðga fjögurra ára gamalli stúlku. Lögreglan deildi efni þar sem börn voru misnotuð á síðunni til að ekki kæmist upp um að þeir væru að fylgjast með síðunni. Aðrir notendur héldu áfram að deila og skoða efni á síðunni á meðan lögreglan stjórnaði henni. Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Argos tekur til slíkra aðgerða, en VG spyr meðal annars hvort hægt sé að réttlæta að lögreglan deili ólöglegu efni til að koma upp um glæpsamlega starfsemi. Síðan var ein sú stærsta af sinni tegund þar til lögreglan tók hana úr birtingu í síðasta mánuði. Hún var stofnuð í apríl árið 2016 og voru rúmlega milljón notendur skráðir. Þrjú til fjögur þúsund þeirra voru virkir notendur. Um hundrað „framleiðendur“ mynduðu nauðganir af börnum og deildu myndböndum og myndum á síðunni. Í kjölfar aðgerða Argos hafa lögregluyfirvöld í tólf löndum hafið rannsókn á notendum síðunnar.Munu áfram notast við slíkar aðferðir Jon Rouse, yfirmaður Argos, segir að aðgerðirnar hafi bjargað börnum um allan heim. Notendur voru nær algjörlega nafnlausir þökk sé forritinu Tor. „Þessi nafnleynd og þessi „griðastaður“ sem síðan á að vera gerði það að verkum að hægt var að deila efni sem skaðaði börn. Það bjó til vettvang fyrir þetta fólk að deila hryllilegri hugmyndafræði sinni og miðil til að deila aðferðum til að komast hjá lögreglunni,“ segir Rouse í samtali við The Guardian. „Teymið okkar og önnur viðlíka teymi um allan heim hafa það eina markmið að stöðva kynferðislega misnotkun á börnum og við munum áfram vinna saman við að lauma okkur inn, skemma fyrir og taka slíkar síður niður.“ Stofnandi síðunnar, Kanadamaðurinn Benjamn Faulkner, afplánar nú lífstíðardóm í fangelsi fyrir nauðgun á fjögurra ára stúlku í Virginíuríki á síðasta ári. Samverkamaður hans við brotið var Bandaríkjamaðurinn Patrick Falte, sem einnig var stjórnandi slíkrar síðu. Báðir mennirnir eru sérfræðingar í netöryggi.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira