Níu ára sendast með vopn og fíkniefni í Svíþjóð Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 23. júní 2017 07:00 Lögreglan segir ástandið í sumum hverfum grafalvarlegt. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA vísir/epa
Dæmi eru um að níu ára börn hafi verið látin sendast með vopn og fíkniefni í hverfum í Svíþjóð sem skilgreind hafa verið sem hættusvæði. Ofbeldið er orðið grófara í þessum hverfum og lögreglan segir ástandið grafalvarlegt. Táningar hafa tekið þátt í skotbardögum glæpagengja. Áður hafi menn skotið andstæðinginn í fótinn til að hræða hann. Nú skjóti menn andstæðinginn í höfuðið til að drepa hann. Í nýrri skýrslu sænsku lögreglunnar segir að ungmenni á aldrinum 15 til 25 ára beri ábyrgð á glæpaöldunni. Lögreglan bendir á að þau sem eldri eru virki eins og atvinnumiðlun fyrir þau yngri og ýti þeim út í glæpastarfsemi. Þess er getið að í hverfum þar sem ástandið er slæmt tíðkist oft viðskipti með leigusamninga sem hafi í för með sér að margar fjölskyldur búa í sömu íbúð. Afleiðingin sé sú að unglingar forðist að vera heima hjá sér. Í 61 hverfi sem lögreglan flokkar sem hættusvæði eru um fimm þúsund glæpamenn í um 200 gengjum. Innan við helmingur íbúanna hefur atvinnu og óánægjan með samfélagið er mikil. Tekið er fram að ástandið sé sérstaklega alvarlegt í 23 hverfanna. Það eru átta fleiri en í skýrslunni 2015. Í hverfunum sem skilgreind eru sem hættusvæði hefur byggst upp hliðarsamfélag með eigið „réttarkerfi“. Með hótunum, ofbeldi og skemmdarverkum eru verslunareigendur þvingaðir til að kaupa sér vernd eða selja starfsemi sína á undirverði. Glæpamenn sýna vald sitt með því að stela úr verslunum án þess að leyna því og borða á veitingastöðum í hverfunum án þess að greiða fyrir. Traust á opinbera réttarkerfinu er lítið og fáir þora að hafa samband við lögregluna. Grípi lögreglan inn í gegn þeim sem stjórna er hætta á uppþotum. Spenna hefur einnig myndast í hverfunum vegna nærveru stuðningsmanna ýmissa íslamskra öfgasamtaka. Lögreglan segir þessa þróun ekki hafa gerst á einni nóttu, heldur á nokkrum áratugum. Ástandið ógni lýðræðinu og réttarkerfinu.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira