Messi sem hætti við að hætta og skoraði í endurkomunni: „Ég blekkti engan“ Tómas Þór Þórðarson skrifar 2. september 2016 11:00 Lionel Messi með ljósu lokkana í leiknum í nótt. vísir/getty
Lionel Messi segir engan hafa blekkt með ákvörðun sinni að hætta í landsliðinu en sú ákvörðun stóð aðeins í nokkrar vikur. Hann ákvað að halda áfram að spila með argentínska landsliðinu og spilaði sinn fyrsta leik eftir „endurkomuna“ í nótt. Argentína vann þá Úrúgvæ, 1-0, í toppslag undankeppni HM 2018 í Suður-Ameríku en Messi reyndist hetja heimamanna er hann skoraði eina markið undir lok fyrri hálfleiks. Messi var niðurbrotinn maður eftir tap gegn Síle annað árið í röð í úrslitaleik Suður-Ameríkukeppninnar en hann er nú búinn að tapa þremur stórum úrslitaleikjum með Argentínu (HM 2015, Copa America 2015 og 2016) á þremur árum. Messi ítrekaði eftir sigurinn í gærkvöldi að hann hefði ekki verið að fíflast neitt með ákvörðun sína að hætta. Það var landsliðsþjálfarinn Edgardo Bauza sem fékk hann af þeirri ákvörðun en hann flaug til Evrópu til að hitta leikmanninn í sumar. „Ég er mjög þakklátur fyrir að vera kominn aftur í landsliðið. Ég blekkti samt engan þegar ég sagðist vera hættur. Mér leið þannig,“ sagði Messi við argentínska ríkissjónvarpið eftir sigurinn í nótt. „Við vorum rosalega svekktir eftir það sem gerðist í sumar en síðar leið mér betur. Ég ræddi við þjálfarann sem hjálpaði mér í gegnum þetta,“ sagði Lionel Messi. Argentína er á toppi riðilsins með fjórtán stig eftir sjö leiki en það stökk upp fyrir Úrúgvæ með sigrinum. Messi er reyndar tæpur vegna meiðsla fyrir næsta leik Argentínu sem er á móti Venúsúela.
Fótbolti Mest lesið Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Enski boltinn Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Formúla 1 Enginn í bann en fullt af sektum Körfubolti Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Íslenski boltinn Stinningskaldi safnaði fyrir sektinni og borgaði hana Körfubolti Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Fótbolti Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Enski boltinn Uppgjör: Keflavík 88-77 KR | Tene-ferð þjálfarans hafði engin áhrif Körfubolti Halda áfram að deila: Van Veen er alveg sama hvað Littler finnst Sport Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti Fleiri fréttir Börsungar nýttu sér óvænt tap Real Madrid Kristian gerði sínu gamla félagi grikk Hákon reimaði á sig markaskóna í kvöld Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Lærisveinar Sigga Ragga á toppnum í Færeyjum Elías varði víti í annars svekkjandi leik Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Rifnar treyjur og rauð spjöld: Albert og Suslov sáu rautt eftir að upp úr sauð Chelsea flaug áfram í undanúrslit Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Ótrúlegar sviptingar og Real Madrid fór stigalaust frá Mallorca Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Karólína, Cecilía og stöllur styrktu stöðuna í öðru sætinu Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Haaland með þrennu þegar City rúllaði yfir Liverpool Íris skoraði aftur gegn Juventus „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Einn lést og 47 slösuðust á fótboltaleik í Perú Verða allir með gullmerki til að sýna liðsfélaga sínum stuðning Lét ekki viðbeinsbrot stoppa sig og fagnaði í fatla Vafasamur vítaspyrnudómur stöðvaði ekki toppliðið Dembélé með aðra tvennu gegn Toulouse Glódís skallaði sig inn í lið umferðarinnar Ægir Jarl mættur til Fram Mo Salah fékk ráð frá Steven Gerrard Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Sjá meira
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti
Uppgjör: Grindavík 79-73 Valur | Tóku stórt skref í átt að undanúrslitum í spennutrylli Körfubolti