Boðið til Íslands eftir hnífstungu á EM: Trúa vart góðvildinni sem þau mæta á Íslandi Jóhann Óli Eiðsson skrifar 4. október 2016 06:30 Adam og Catherine eiga erfitt með að lýsa þakklætinu sem þau finna fyrir í garð Íslendinga. vísir/anton brink
Adam Williams, 25 ára breskur lögregluþjónn og stuðningsmaður íslenska landsliðsins í fótbolta, sem stunginn var eftir leik Íslands og Frakklands á Evrópumótinu í fótbolta í sumar, er kominn hingað til lands ásamt unnustu sinni. Hann hyggst sjá leiki Íslands gegn Finnlandi og Tyrklandi í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvelli. Adam komst í fréttirnar eftir að ókunnugur maður réðst á hann vopnaður hnífi eftir leik Íslands og Frakklands. Bati hans hefur verið snöggur og hann er snúinn aftur til fyrri starfa. „Ég hef verið að sinna skrifstofuvinnu hjá lögreglu að undanförnu en býst við að snúa aftur út á götuna þegar ég kem heim frá Íslandi.“Hannes Freyr ásamt Bretunum við Tjörnina í gær.Vísir/Anton BrinkEftir að fréttir bárust af árásinni settu íslenskir stuðningsmenn sig í samband við aðila hér heima með það að marki að bjóða parinu hingað til lands og á leik með landsliðinu. Hannes Freyr Sigurðsson, gallharður stuðningsmaður Íslands, fór fyrir því verkefni. Einnig hófst söfnun til styrktar Adam en hann hefur í hyggju að afhenda Barnaspítala Hringsins og Landsbjörg hluta upphæðarinnar sem safnaðist. „Það sem gerðist eftir árásina, hvernig Íslendingar brugðust við, við trúðum því ekki. Vinir okkar heima trúðu því ekki heldur. Þetta er í raun lygilegt. Hlutir sem þessir fá þig til að öðlast trú á mannkyninu,“ segir Adam. Hann vill endurgjalda þá góðmennsku með því að gefa til baka hluta peninganna sem söfnuðust. „Ísland og Íslendingar studdu mig í gegnum þá erfiðleika sem ég gekk í gegnum. Ef ég get orðið Íslendingum að liði með þessu móti þá geri ég það með bros á vör.“ „Ísland er afar fallegt og við erum mjög spennt yfir því að verja næstu átta dögum hérna,“ segir Adam en hann og Catherine Janes, unnusta hans, lentu hér í gær. Hann hlakkar mjög til leikjanna tveggja en bíður þess einnig með eftirvæntingu að komast í ýmsar dagsferðir meðan á fríi þeirra stendur. „Við Catherine viljum koma á framfæri einlægum þökkum til Íslendinga og allra þeirra sem aðstoðuðu okkur. Við trúum þessu varla ennþá,“ segir Adam að lokum. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Viðbrögð Íslendinga kveikja von í brjósti stuðningsmanns Íslands sem stunginn var í París: „Færið okkur norðurljósin á erfiðum tímum“ Lögreglumaðurinn sem stunginn var í París eftir leik Íslands og Frakklands er djúpt snortinn yfir viðbrögðum Íslendinga. 10. júlí 2016 11:30 Stuðningsmaður Íslands stunginn í París: Unnustan djúpt snortin yfir viðbrögðum Íslendinga "Það kom mér mikið á óvart hvað þetta sprakk út á stuttum tíma,“ segir Hannes Freyr Sigurðsson. 7. júlí 2016 14:45 Mest lesið Hálfri milljón yrði gert að rýma kæmi til goss Erlent Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Innlent Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Innlent Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Innlent Sagðist opinn fyrir takmörkunum á getnaðarvarnir Erlent Kanna hvar Perry fékk ketamínið Erlent Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru Innlent „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Íslendingur á meðal farþega í flugvélinni Erlent Fleiri fréttir Tækifærum fækkar til að sjá svona flugvélar fljúga Segir hin sigurstranglegu hafa tromp á hendi Pétur Jökull ákærður í stóra kókaínmálinu Nýir prestar og nýir djáknar mættir til starfa Ástæða fyrir því að spenna beltin í flugi Kjósendur eiga miserfitt með að ákveða sig Deginum ljósara að það verði ekki veitt í sumar Spenna við Svartsengi, hvalveiðar í uppnámi og flugvélar í beinni Utanríkisráðuneytið harmar skort á kjörseðlum Bjarni í heimsókn í Malaví Kviknaði í hverju fjórhjólinu á fætur öðru „Ömurleg staða að vera settur í“ Þróttur lætur þríhyrninginn ekki af hendi „Ber þess merki að eitthvað sé mjög nálægt því að bresta“ Herþristar á níræðisaldri til sýnis á Reykjavíkurflugvelli Íbúar undirbúa hópmálsókn vegna uppkaupa í Grindavík Líst best á Baldur og Höllu en verst á Ástþór Samningar loks í höfn eftir fjögurra ára samningsleysi „Forsetaframbjóðandi er á villigötum“ Um sautján milljónir rúmmetra af kviku bæst við kvikuhólfið Hafa enga trú á að hvalveiðar fari fram í sumar Breytingar í borholum og fylgi frambjóðenda enn á hreyfingu Stefnir í spennandi og sögulegar forsetakosningar Erfiðast að fá Baldur til að tala um sjálfan sig Nýjar reglur um sjálfbæra landnýtingu Skúli metinn hæfastur í Hæstarétt Breytingar í borholum á Reykjanesi „Sjálfum leiðast mér þessar nasistalíkingar“ Lögreglan lýsti eftir fimmtán ára gamalli stúlku Hafa náð lendingu um staðarval nýs kirkjugarðs Sjá meira
Viðbrögð Íslendinga kveikja von í brjósti stuðningsmanns Íslands sem stunginn var í París: „Færið okkur norðurljósin á erfiðum tímum“ Lögreglumaðurinn sem stunginn var í París eftir leik Íslands og Frakklands er djúpt snortinn yfir viðbrögðum Íslendinga. 10. júlí 2016 11:30
Stuðningsmaður Íslands stunginn í París: Unnustan djúpt snortin yfir viðbrögðum Íslendinga "Það kom mér mikið á óvart hvað þetta sprakk út á stuttum tíma,“ segir Hannes Freyr Sigurðsson. 7. júlí 2016 14:45