Mexíkó skoraði tvö mörk í lokin og vann Úrúgvæ | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2016 07:30
Mexíkó byrjar Ameríkukeppnina í fótbolta vel en lið Mexíkó vann 3-1 sigur á Úrúgvæ í fyrsta leik riðilsins í nótt. Venesúela vann 1-0 sigur á tíu mönnum Jamaíka í hinum leik riðilsins. Luis Suarez gat ekki spilað með Úrúgvæ vegna meiðsla en hann er enn að ná sér eftir meiðsli sem hann varð fyrir í leik með Barcelona. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Úrúgvæmenn sem þurftu fyrst að hlusta á þjóðsöng Síle í stað síns þjóðsöngs fyrir leikinn og svo varð Alvaro Pereira fyrir því óláni að skora sjálfsmark eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Ekki batnaði ástandið þegar Úrúgvæmaðurinn Matias Vecino fékk sitt annað gula spjald á 44. mínútu. Úrúgvæ fór líka illa með tvö mjög góð færi. Andres Guardado hjá Mexíkó fékk sitt annað gula spjald fyrir brot á Carlos Sanchez á 74. mínútu. Carlos Sanchez tók aukaspyrnuna og gaf fyrir á Diego Godin sem jafnaði leikinn með skallamarki. Mexíkóbúar tryggðu sér hinsvegar sigurinn með tveimur mörkum á síðustu fimm mínútum leiksins. Það fyrra skoraði fyrirliðinn Rafael Marquez eftir hornspyrnu og það síðara gerði Héctor Herrera með skalla í uppbótartíma eftir skyndisókn og sendingu Diego Perez.Venesúela vann 1-0 sigur á Jamaíka þar sem Josef Martinez skoraði sigurmarkið strax á 15. mínútu leiksins. Venesúela lék síðan manni fleiri síðustu 67 mínúturnar eftir að Rodolph Austin fékk rautt spjald á 23. mínútu. Winfried Schaefer, þjálfari Jamaíka, var einnig rekinn upp í stúku fyrir mótmæli í seinni hálfleiknum. Schaefer geymdi Stjörnumanninn Duwayne Kerr á bekknum en í stað hans stóð Andre Blake í marki Jamaíka í þessum leik. Blake átti mjög góðan leik og heldur örugglega sæti sínu þegar Jamaíka mætir toppliði Mexíkó í næsta leik.Það er hægt að sjá mörkin úr leik Mexíkó og Úrúgvæ í spilaranum hér fyrir ofan.
Fótbolti Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Elías Rafn hélt hreinu og Midtjylland í kjörstöðu Stjarnan - Breiðablik | Úlfaþytur í Garðabæ Rúnar Alex í markinu og hélt hreinu Gri/Nja - Fram | Gætu endað hlið við hlið í kvöld Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Daníel biðst lausnar: „Malmö vill ekki sleppa mér“ Cancelo mættur til Barcelona en bíður eftir skráningu Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones „Erum peppaðir í að spila þennan leik“ Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ „Versta ár ævi minnar“ Heimavöllur PSG ónothæfur eftir hitabylgjur sumarsins Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Marcus Rashford búinn að fá nóg Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Sjá meira