Mourinho: Orð mín voru ætluð Conte en ekki ykkur Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. október 2016 17:19 Mourinho og Conte eftir leik í dag. vísir/afp
Stærsta tap Jose Mourinho í ensku úrvalsdeildinni kom á hans gamla heimavelli í dag. Þá valtaði Chelsea yfir lærisveina Mourinho í Man. Utd, 4-0. Hann hefur aðeins einu sinni tapað stærra á ferlinum en það var 5-0 tap gegn Barcelona árið 2010. „Þetta byrjaði strax mjög illa en við vorum nálægt því að jafna. Svo komast þeir í 2-0,“ sagði Mourinho en Pedro kom Chelsea yfir í leiknum eftir aðeins 29 sekúndur.Sjá einnig: Chelsea niðurlægði Manchester United „Við mætum með ákveðna leikáætlun og þá er ekki hægt að fá á sig mark eftir nokkrar sekúndur. Við vildum sækja í dag og sýndum hvað við getum í stöðunni 1-0. Annað og þriðja markið þeirra kemur eftir skyndisóknir. Ef við hefðum minnkað muninn í 2-1 þá hefði þetta orðið annar leikur.“ Stjóri Manchester-liðsins var miður sín út af varnarleik sinna manna.Sjá einnig: Eiður: José kann ennþá að ná því besta út úr Chelsea „Við gerðum ótrúleg mistök í vörninni. Einstaklingsmistök og fyrir þau var refsað grimmilega. Við fengum engin stig og erum sex stigum frá toppnum. Nú þurfum við að fara að vinna leiki og saxa á toppliðin.“ Þetta var auðvitað líka sérstakur leikur fyrir Mourinho þar sem hann var á sínum gamla heimavelli. Hann talaði heillengi við Antonio Conte, stjóra Chelsea, í leikslok en vildi ekki gefa upp hvað hann sagði. „Áhorfendur hegðuðu sér mjög vel. Það sem ég sagði við Conte voru orð sem voru ætluð honum en ekki ykkur.“
Enski boltinn Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira