Kolbeinn: Verkjalaus og það er æðislegt Hjörtur Hjartarson skrifar 28. janúar 2016 19:15 Kolbeinn í leik með Nantes. Vísir/Getty
Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsframherji og leikmaður Nantes í Frakklandi, hefur verið að standa sig vel í frönsku deildinni að undanförnu og skorað nokkur mörk eftir rólega byrjun á sínu fyrsta tímabili í deildinni. Kolbeinn var í viðtali á Akraborginni á X-inu í dag og segir að líðanin sé mun betri eftir að hann byrjaði að skora meira. „Það er mikilvægast fyrir framherja að skora mörk og maður þrífst á því. Ég hef verið að skora síðustu vikur og finnst ganga vel núna,“ sagði Kolbeinn í viðtalinu. „Maður veit alltaf best sjálfur hvernig staðan er og þetta kom kannski vel út í fjölmiðlum. En fólk vissi ekki að ég var að glíma við mikið af meiðslum og ég var alveg rólegur. Ég vissi að það myndi ganga betur þegar ég næði að æfa almennilega.“Sjá einnig: Kolbeinn hefur tekið verkjatöflur fyrir hvern einasta leik „Mér líður vel í líkamanum núna og það er ekkert að. Það er mikilvægast,“ sagði Kolbeinn og bætir við að hann hefði aldrei misst trúna þrátt fyrir erfið meiðsli. „Ég er kominn með það góða reynslu af meiðslum að ég veit að þegar ég næ mér góðum á ný þá fer ég að spila vel aftur. Yfirleitt tekst mér að spila vel þegar formið er gott. Þessi helvítis meiðsli stoppa mann stundum í þessu og það er það sem er verst fyrir fótboltamanninn, sem er dæmdur út frá frammistöðunni á vellinum.“ „Eins og er núna er ég alveg verkjalaus og það er alveg æðislegt. Þegar líkaminn er góður getur maður gert meira á æfingum og í leikjum. Ég er ekki að glíma við nein meiðsli og er og nýt þess.“ Kolbeinn segir að það hafi aldrei komið til greina að fara frá Nantes og segist hann vilja vera áfram í deildinni. Viðtalið má heyra í heild sinni hér efst í fréttinni.
Fótbolti Mest lesið Yfirgefur Keflavík vegna komu Martins Körfubolti Ótrúleg tölfræði Jokic Körfubolti Enn kvarnast úr liði Blika Íslenski boltinn Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti „Ég mun ekki keppa við Rússa á meðan stríð er í gangi“ Sport Gray hetja Tottenham Enski boltinn Jafnt í stórleiknum Fótbolti Jöfnuðu 128 ára gamalt met Enski boltinn Spennutryllir eftir tvö burst Sport Fleiri fréttir Enn kvarnast úr liði Blika Jafnt í stórleiknum Martínez skaut Inter á toppinn Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Sjá meira