Koeman og Agüero bestir í janúar Tómas Þór Þórðarson skrifar 5. febrúar 2016 07:45 Sergio Agüero skoraði fimm mörk í janúar. vísir/getty
Ronald Koeman, knattspyrnustjóri Southampton, var kjörinn stjóri mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni og Sergio Agüero, framherji Manchester City, besti leikmaður úrvalsdeildarinnar í janúarmánuði. Koeman stýrði Dýrlingunum til sigurs í þremur af fjórum leikjum nýs árs í úrvalsdeildinni, en hann kláraði mánuðinn með 1-0 sigri á útivelli gegn Manchester United. Áður voru lærisveinar Koeman í Southampton búnir að vinna West Brom og Watford, en Dýrlingarnir eru hægt og sígandi að koma sér í harða baráttu um Evrópusæti. Koeman hafði naumlega betur í baráttunni við Mauricio Pochettino, knattspyrnustjóra Tottenham, sem einnig vann þrjá leiki af fjórum í mánuðinum sem leið. Sergio Agüero hlaut nafnbótina leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn síðan í nóvember 2014. Argentínumaðurinn skoraði fimm mörk í fjórum leikjum og lagði upp eitt mark til viðbótar auk þess sem hann átti 79 heppnaðar sendingar. Agüero hafði betur í samkeppni við Jermain Defoe sem einnig skoraði fimm mörk fyrir Sunderland. Roberto Firmino hjá Liverpool kom einnig til greina fyrir sín fjögur mörk.
Enski boltinn Tengdar fréttir Hver af þessum sex verður kosinn besti leikmaður mánaðarins í enska boltanum? Sex leikmenn koma til greina sem besti leikmaður janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi Þór Sigurðsson er ekki tilnefndur þrátt fyrir sinn besta mánuð í langan tíma. 4. febrúar 2016 23:00 Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Sjá meira
Hver af þessum sex verður kosinn besti leikmaður mánaðarins í enska boltanum? Sex leikmenn koma til greina sem besti leikmaður janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi Þór Sigurðsson er ekki tilnefndur þrátt fyrir sinn besta mánuð í langan tíma. 4. febrúar 2016 23:00