Innlent

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni

Samstarfi SALEK-hópsins hefur verið slitið þar sem niðurstaða um jöfnun lífeyrisréttinda á almenna markaðnum liggur ekki fyrir. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og rætt við forseta ASÍ og ríkissáttasemjara. Forseti ASÍ segir málið grafalvarlegt. Ítarlega verður fjallað um ofsaúrkomuna sem skellur á Suðurlandi og nýsamþykkt lög um gjaldeyrismál sem hafa í för með sér losun gjaldeyrishafta sem hafa verið í gildi á Íslandi frá nóvember 2008. Kosningasjónvarp Stöðvar tvö hefst síðan strax að loknum fréttum þar sem fulltrúar flokka í Norðvesturkjördæmi koma til umræðna hjá Heimi Má Péturssyni. Þetta og miklu meira til í kvöldfréttum Stöðvar 2, klukkan 18:30 á samtengdum rásum Stöðvar 2 og Bylgjunnar og í beinni útsendingu á fréttavefnum Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×