Mynt frá 11. öld skilað sextíu árum eftir fund Jóhann Óli Eiðsson skrifar 12. september 2016 06:45 grafík/birgitta
Mynt frá því er Ólafur kyrri réð ríkjum yfir Íslandi var skilað til minjavarðar Norðurlands í síðustu viku. Peningurinn fannst skömmu eftir heimsstyrjöldina síðari en ástæða þess að honum var skilað nú er fréttaflutningur af fornminjafundi liðinnar viku. „Þetta er mynt sem hefur fylgt mér lengi. Ég held ég hafi fundið hana skömmu fyrir 1950,“ segir Hermann Jónsson, fyrrverandi hafnarvörður á Akureyri.Hermann Jónsson með myntina.„Ég var bara patti, um sjö ára að ég held, að leika mér að bílum í moldinni heima þegar ég rakst á hann. Einhverra hluta vegna ákvað ég að taka hann upp. Síðan þá hef ég geymt myntina.“ Hermann ólst upp á Mýlaugsstöðum í Aðaldal en flutti til Akureyrar árið 1963. Peningurinn var með í för. Hann segist lengi hafa ætlað sér að fara með hann til minjavarðar en það hafi alltaf gleymst þar til nú. „Ég fór með hann núna í síðustu viku eftir að það var sagt frá sverðinu sem fannst í Skaftárhreppi. Það var vítamínsprautan sem þurfti til,“ segir Hermann. Peningurinn er tæpir fimmtán millimetrar í þvermál og úr silfri. Fyrri eigandi hans hefur sennilega notað hann sem hálsmen því á einum stað í jaðri hans hefur verið gert lítið gat. Þar má ímynda sér að snæri hafi verið dregið í gegn og myntin sett um háls einhvers. „Peningurinn hefur örlítið látið á sjá síðan ég fann hann því ég man að fyrst þegar ég fann hann var gatið heilt. Hann hefur aðeins tærst upp en táknin á báðum hliðum sjást enn nokkur greinilega. Tíminn vinnur á honum líkt og öðrum hlutum.“ Mynt frá þessum tíma er afar fágæt, bæði hér á landi sem og í öðrum löndum, segir Anton Holt myntsérfræðingur. Þó hafa nokkrar slíkar fundist hér víða um land. „Það eru helst Þingvellir sem skera sig úr hvað fjölda fundinna mynta varðar enda fornleifauppgreftir þar verið reglulegir,“ segir Anton. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Fleytti jafnvel kerlingar í Skaftárhlaupi í fyrra Þeim möguleika er nú velt upp að sverðið, sem fannst í Skaftárhreppi á dögunum, hafi aðeins legið þar í stutta stund. Hlaup í ánni gæti hafa numið það með sér og fært til. 10. september 2016 07:00 Fundu sverð sem gæti verið frá árinu 1000 Gæsaveiðimenn á skytterí um helgina fundu sverð sem Minjastofnun telur að gæti verið frá árinu 1000. 5. september 2016 10:46 Með merkari fornleifafundum síðustu ára "Það eru svo fá sverð sem hafa fundist hér og því er þetta mikill fengur fyrir sögu þjóðarinnar,“ dr. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands. 6. september 2016 07:00 Eigna má sverðið Hróari Tungugoða Sverðið er frá 10. öld fannst á slóðum sem þar sem bær goðorðsmannsins Hróars Tungugoða stóð mögulega. Prófessor emeritus í sagnfræði kastar fram þeirri tilgátu að höfðingi eins og Hróar hafi hugsanlega átt sverðið. 9. september 2016 07:00 Mest lesið Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Erlent „Við höldum í fjallarómantíkina“ Innlent Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Innlent „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Innlent Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Innlent Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent Fundað í flugvirkjadeilu Innlent Fleiri fréttir Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ „Við höldum í fjallarómantíkina“ „Ofsalega leið og sár yfir þessari framgöngu hans“ Nær fjórir af hverjum tíu bitnir Hefði átt að vita að stungan gæti leitt til dauða Samfélagsmiðlasérfræðingur sækist eftir formennsku í ASÍ Hætti í flokknum eftir samtal Ingu Sæland við eiginkonuna Trúfélögin hafi greinilega ekki fylgst með innhólfinu Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Brim sýknað af kröfum foreldra sjómannsins Sundabraut verði eitt það fyrsta á dagskrá Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum Sjá meira
Fleytti jafnvel kerlingar í Skaftárhlaupi í fyrra Þeim möguleika er nú velt upp að sverðið, sem fannst í Skaftárhreppi á dögunum, hafi aðeins legið þar í stutta stund. Hlaup í ánni gæti hafa numið það með sér og fært til. 10. september 2016 07:00
Fundu sverð sem gæti verið frá árinu 1000 Gæsaveiðimenn á skytterí um helgina fundu sverð sem Minjastofnun telur að gæti verið frá árinu 1000. 5. september 2016 10:46
Með merkari fornleifafundum síðustu ára "Það eru svo fá sverð sem hafa fundist hér og því er þetta mikill fengur fyrir sögu þjóðarinnar,“ dr. Kristín Huld Sigurðardóttir, forstöðumaður Minjastofnunar Íslands. 6. september 2016 07:00
Eigna má sverðið Hróari Tungugoða Sverðið er frá 10. öld fannst á slóðum sem þar sem bær goðorðsmannsins Hróars Tungugoða stóð mögulega. Prófessor emeritus í sagnfræði kastar fram þeirri tilgátu að höfðingi eins og Hróar hafi hugsanlega átt sverðið. 9. september 2016 07:00
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent
Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Innlent