Innlent

Færri innbrot rakin til myndavéla í sumarbústaðahverfum

Heiðar Lind Hansson skrifar
Skorradalshreppur lét að eigin frumkvæði setja upp fimm eftirlitsmyndavélar sumarið 2014 á allar aðkomuleiðir inn í Skorradal
Skorradalshreppur lét að eigin frumkvæði setja upp fimm eftirlitsmyndavélar sumarið 2014 á allar aðkomuleiðir inn í Skorradal vísir/pjetur
Sterkar vísbendingar eru um að innbrotum á Vesturlandi muni fækka verulega frá því í fyrra. Alls voru 16 innbrot skráð á fyrstu átta mánuðum þessa árs, en alls voru þau 44 allt árið 2015, 45 árið 2014 og 50 árið 2013. Þetta kom fram á fundi í samráðsnefnd lögreglustjóra og sveitarstjóra á Vesturlandi 7. september sl.

Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi.
Að sögn Theodórs Kr. Þórðarsonar yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi er fækkunin rakin til aukinnar notkunar eftirlitsmyndavéla og öryggishliða í sumarbústaðahverfum landshlutans, en langflest tilkynnt innbrot eru í sumarbústaði. „Á undanförnum tveimur árum hefur eftirlitsmyndavélum á Vesturlandi fjölgað sem og uppsetning á símastýrðum öryggishliðum að sumarbústaðahverfum. Með þessum búnaði hefur tekist að draga mjög úr innbrotum í umdæminu,“ segir Theódór.

Hann segir Skorradalshrepp hafa haft ákveðna forgöngu í þessum málum, en þar er að finna eitt stærsta sumarbústaðasvæði Vesturlands með um 600 bústaði. Hreppurinn lét að eigin frumkvæði setja upp fimm eftirlitsmyndavélar sumarið 2014 á allar aðkomuleiðir inn í Skorradal.

„Þá hefur öryggishliðum og eftirlitsmyndavélum einnig fjölgað í sumarbústaðahverfunum í Svínadal í Hvalfjarðarsveit þar sem eru margir orlofsbústaðir. Sömu sögu er að segja í öðrum bústaðahverfum í Borgarfirði. Með þessum öryggisbúnaði, nágrannavörslu og aukinni löggæslu hefur innbrotum í sumarbústaði fækkað verulega,“ segir Theodór sem bætir því að með því að skoða upptökur úr vélunum hafi tekist að hafa hendur í hári innbrotsþjófa. „Auk þess er ljóst að þessi búnaður hefur vissulega mikinn fælingarmátt.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×