Færri innbrot rakin til myndavéla í sumarbústaðahverfum Heiðar Lind Hansson skrifar 13. september 2016 07:00 Skorradalshreppur lét að eigin frumkvæði setja upp fimm eftirlitsmyndavélar sumarið 2014 á allar aðkomuleiðir inn í Skorradal vísir/pjetur
Sterkar vísbendingar eru um að innbrotum á Vesturlandi muni fækka verulega frá því í fyrra. Alls voru 16 innbrot skráð á fyrstu átta mánuðum þessa árs, en alls voru þau 44 allt árið 2015, 45 árið 2014 og 50 árið 2013. Þetta kom fram á fundi í samráðsnefnd lögreglustjóra og sveitarstjóra á Vesturlandi 7. september sl.Theodór Kr. Þórðarson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Vesturlandi.Að sögn Theodórs Kr. Þórðarsonar yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi er fækkunin rakin til aukinnar notkunar eftirlitsmyndavéla og öryggishliða í sumarbústaðahverfum landshlutans, en langflest tilkynnt innbrot eru í sumarbústaði. „Á undanförnum tveimur árum hefur eftirlitsmyndavélum á Vesturlandi fjölgað sem og uppsetning á símastýrðum öryggishliðum að sumarbústaðahverfum. Með þessum búnaði hefur tekist að draga mjög úr innbrotum í umdæminu,“ segir Theódór. Hann segir Skorradalshrepp hafa haft ákveðna forgöngu í þessum málum, en þar er að finna eitt stærsta sumarbústaðasvæði Vesturlands með um 600 bústaði. Hreppurinn lét að eigin frumkvæði setja upp fimm eftirlitsmyndavélar sumarið 2014 á allar aðkomuleiðir inn í Skorradal. „Þá hefur öryggishliðum og eftirlitsmyndavélum einnig fjölgað í sumarbústaðahverfunum í Svínadal í Hvalfjarðarsveit þar sem eru margir orlofsbústaðir. Sömu sögu er að segja í öðrum bústaðahverfum í Borgarfirði. Með þessum öryggisbúnaði, nágrannavörslu og aukinni löggæslu hefur innbrotum í sumarbústaði fækkað verulega,“ segir Theodór sem bætir því að með því að skoða upptökur úr vélunum hafi tekist að hafa hendur í hári innbrotsþjófa. „Auk þess er ljóst að þessi búnaður hefur vissulega mikinn fælingarmátt.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Lögreglan bauð fimmtugum Íslendingi „gistingu með öllu inniföldu“ í fangaklefa Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Sjá meira