Síbrotamaður fékk tólf mánuði fyrir tvær líkamsárásir Jóhann Óli Eiðsson skrifar 11. júlí 2016 22:22 Önnur líkamsárásanna var í Bríetartúni í október árið 2014. vísir/valli
Styrmir Haukdal Snæfeld Kristinsson var í Héraðsdómi Reykjaness fyrir helgi dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir tvær líkamsárásir. Árásirnar tvær áttu sér stað í október og nóvember árið 2014. Fyrri árásin átti sér stað í Bríetartúni í október. Styrmi var gefið að sök að að hafa ítrekað slegið með krepptum hnefa og sparkað í og stappað á höfði annars manns sem lá sofandi á dýnu, með þeim afleiðingum að hann missti meðvitund og hlaut margúl og hruflsár vinstra megin á enni. Sú síðari átti sér stað í nóvember í fjölbýlishúsi við Hestavað. Þá var honum gert að sök að hafa slegið ítrekað með krepptum hnefa í andlit konu og síðar sömu nótt, eftir að lögreglu bar að garði, slegið hana með krepptum hnefa í andlitið allt með þeim afleiðingum að hún hlaut nefbrot, heilahristing og dreifð þreifieymsl. Fyrir dómi neitaði Styrmir sök í báðum tilfellum. Í því fyrra vildi hann meina að þegar hann kom í Bríetartún hefði maðurinn haft áverkana þegar sig bar að garði. Hann viðurkenndi að hafa klappað honum til að reyna að ná athygli hans en hafnaði meintri líkamsárás. Brotaþoli bar um það að hann hafi verið sofandi, en vaknað við það að ákærði hafi stappað ofan á andlitinu á honum og sparkað í andlit hans í svörtum klossum með þykkum botni. Fyrir dómi greindi læknir á bráðamóttöku Landspítalans frá því að áverkar á brotaþola gætu samrýmst því að hann hefði fengið högg á andlit eða á höfuð, en ekki væri hægt að greina á milli þess hvort sparkað hafi verið í brotaþola eða hann kýldur eða sleginn í höfuðið. Ekki þótti sannað að Styrmir hefði sparkað í manninn en ljóst að hann hefði slegið hann. Því var hann sakfelldur fyrir þann hluta ákærunnar. Hvað síðari líkamsárásina varðar viðurkenndi Styrmir að hafa slegið konuna eftir að lögreglu bar að garði. Hann hafnaði því hins vegar að hafa gert það áður. Í læknisvottorði sagði að konan hefði hlotið nefbrot, heilahristing og yfirborðsáverka. Í framburði sama læknis fyrir dómi kom fram að ómögulegt væri að slíkir áverkar hefðu myndast við eitt högg. Sannað þótti að Styrmir hefði gerst sekur um þá háttsemi sem honum var gefið að sök. Styrmir, sem er tæplega fertugur, á sakaferil sem nær aftur til ársins 1993. Hann hefur alls tólf sinnum verið dæmdur fyrir brot gegn almennum hegninarlögum og umferðarlögum. Fimm sinnum hefur hann gengist undir sátt vegna brota gegn sömu lögum. Hann hefur fimm sinnum verið dæmdur í fangelsi fyrir líkamsárás, fyrst árið 1994. Styrmir afplánar sem stendur fjögurra ára dóm fyrir hættulega líkamsárás sem átti sér stað úti á Granda í ársbyrjun 2015. Þá stakk hann mann mann í brjóstið með hníf. Dóm Héraðsdóms Reykjaness, en dómurinn var fjölskipaður, má lesa í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Fjögurra ára fangelsi fyrir hnífsstunguárás Árásin átti sér stað á Fiskislóð í janúar síðastliðnum. 5. júní 2015 16:38 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira
Fjögurra ára fangelsi fyrir hnífsstunguárás Árásin átti sér stað á Fiskislóð í janúar síðastliðnum. 5. júní 2015 16:38