Spilar Totti aftur fyrir Roma? Henry Birgir Gunnarsson skrifar 23. febrúar 2016 15:30 Totti er út í kuldanum hjá þjálfara Roma og ekkert víst að hann spili aftur fyrir liðið. vísir/getty
Það reynir á James Pallotta, forseta Roma, næstu daga eftir að þjálfari Roma og stærsta stjarna liðsins fóru að rífast. Francesco Totti kvartaði undan hegðun þjálfarans, Luciano Spalletti, í viðtali um helgina. Sagðist ekki njóta nægrar virðingar hjá honum. Þeir ættu lítil samskipti og hann fengi ekki að spila. Spalletti tók þessum ummælum illa og henti Totti úr leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Palermo á sunnudag. Hann vannst 5-0 og Roma hefur nú unnið fimm leiki í röð. Þeir ræddust ekki við á æfingu daginn eftir og ólíklegt að Spalletti vilji nota Totti í kjölfarið. „Báðir hafa brugðist við þessu ástandi. Ég var hissa á ummælum Totti en skil að hann sé pirraður á því að spila ekki meira,“ sagði Pallotta. „Ég átti ekki von á þessu en Totti er stórkostlegur leikmaður sem hefur ritað nafn sitt gylltu letri í sögubækur félagsins. Svo er það þjálfarinn sem er einn sá besti í heimi. Ég mun setjast niður með Totti og fleirum á næstunni og reyna að leysa þetta mál.“ Samningur hins 39 ára gamla Totti rennur út næsta sumar. Hann hefur lýst yfir áhuga á að halda áfram en Spalletti virðist ekki hafa áhuga á að nota hann.
Fótbolti Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Sjá meira