Savile notaði hvert tækifæri sem gafst til þess að fremja kynferðisbrot Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 25. febrúar 2016 23:30 Ný skýrsla um starfshætti BBC í tengslum við kynferðisbrot Jimmy Savile og Stuart Hall dregur upp dökka mynd. Vísir/Getty
Jimmy Savile framdi kynferðisbrot hvenær sem tækifæri gafst á meðan hann starfaði hjá BBC. Yfirmenn BBC fengu ekki ábendingar inn á sitt borð um kynferðisbrot hans og sjónvarpsmannsins Stuart Hall vegna sérstakrar óttamenningar sem ríkti innan breska ríkissjónvarpsins. Frægðarmenni á borð við þá tvo voru ósnertanlegir innan BBC. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu þar sem starfshættir stofnunarinnar rótgrónu í tengslum við kynferðisbrot Savile og Hall voru rannsakaðir. Í skýrslunni kemur fram að BBC hafi mistekist að koma í veg fyrir hryllilega misnotkun Savile og Hall. Undir þetta tekur forstjóri BBC sem segir ljóst að BBC hafi ekki verndað fórnarlömb þeirra tveggja og hefur hann beðist afsökunar á aðgerðarleysi BBC. Sagt að þaga vegna mikilvægi SavileÍ flestum tilvikum fengu yfirmenn ekki ábendingar um misnotkun mannanna sem voru mjög vel þekktir í Bretlandi á sínum tíma. Töldu starfsmenn það ekki vera sitt hlutverk að segja yfirmönnum frá brotunum. Savile var landsfrægur útvarps- og sjónvarpsmaður en Hall starfaði í sjónvarpi. Í skýrslunni segir að frægðarmenni á borð við þá tvo hafi verið ósnertanleg innan BBC. Ljóst þykir þó að minnsta kosti tveir háttsettir stjórnendur hafi mjög líklega vitað af kynferðisbrotum Hall og Saville innan BBC en ekkert aðhafst. Sagt er frá því þegar starfsmaður BBC kvartaði seint á 9. áratug síðustu aldar undan kynferðislegri misnotkun af hálfu Savile hafi henni verið sagt af stjórnendum að þaga yfir málinu vegna þess hversu mikilvægur starfsmaður Savile væri.Stuart Hall situr nú í fangelsi vegna brota sinna.Vísir/GettyFramdi kynferðisbrot í nærri öllum byggingum BBC sem hann starfaði íBrotin áttu sér stað yfir fimm áratuga skeið frá árinu 1959 en skýrslan ber kennsl á 72 fórnarlömb Savile, þar af átta sem var nauðgað. Hall er talinn hafa brotið á 21 fórnarlambi. Hall er 86 ára en var árið 2013 dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn 13 stelpum. Savile lést árið 2011, 84 ára gamall en var aldrei ákærður fyrir brot sín. Í skýrslunni segir að Savile hafi framið kynferðisbrot hvenær sem tækifæri gafst og í nánast hverri einustu byggingu BBC sem hann starfaði í. Stundaði hann það að leyfa ungum strákum og stelpum að fylgjast með þætti sínum áður en hann réðst til atlögu gegn þeim inn í búningsherbergi sínu.Helstu niðurstöður skýrslunnarLjóst er að Savile nauðgaði átta manns á meðan hann var við vinnu hjá BBC.Meirihluta brotanna átti sér stað á áttunda áratug (1971-1980) síðustu aldar.Yngsta fórnarlamb Savile var átta ára gamalt.Átta óformlegar kvartanir bárust BBC vegna brota þeirra.Hall misnotaði 21 konu, sú yngsta 10 ára, á árunum 1967 til 1991.Tveir yfirstjórnendur vissu líklegast af brotum Hall innan BBC.Hver var Jimmy Savile?Savile var einn þekktasti sjónvarps- og útvarpsmaður Bretlands á sínum tíma auk þess sem framlög hans til góðgerðarmála voru vel þekkt. Svo vel þekkt að hann var kallaður heilagur Jimmy en alls safnaði hann um 40 milljónum punda til góðgerðarmála. Ári eftir dauða hans stigu fjölmörg fórnarlömb hans fram og í ljós kom að hann var einn mesti kynferðisbrotamaður í sögu Bretlands. Misnotaði hann frægð sína og valdastöðu til þess að brjóta kynferðislega gegn hundruð einstaklinga af báðum kynjum.
Tengdar fréttir Kynferðisafbrot Savile eiga sér tæpast hliðstæðu Breska lögreglan telur mögulegt að fjölmiðlamaðurinn Jimmy Savile hafi verið miðpunktur kynferðisafbrotahrings sem misnotaði börn. Síðan fyrst spurðist af kynferðislegri misnotkun Savile og lögregla hóf rannsókn málsins hefur ábendingum hreinlega rignt inn til lögreglu. 20. október 2012 12:13 Fórnarlömb Jimmy Savile fara fram á rannsókn Fórnarlömb barnaníðingsins Jimmy Savile fara fram á að sérstök rannsókn verði gerð á því hvernig Savile hafi komist hjá handtöku í öll þessi ár. 6. janúar 2014 13:54 Glitti í barnaníðinginn Savile í breska ríkissjónvarpinu BBC biðst afsökunar 22. september 2014 23:30 Yngsta fórnarlamb Savile var átta ára gömul stúlka Yngsta fórnarlamb bresku sjónvarpsstjörnunnar og barnaníðingsins Jimmy Savile var aðeins átta ára gömul stúlka. 11. janúar 2013 10:31 Mest lesið Stóðu á gangstétt þegar bíl var ekið á þau Innlent Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Drengur á fjórða ári á gjörgæsludeild eftir slysið Innlent Ofsahræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flugtak Erlent Solaris stefnir formanni Sjálfstæðisflokksins Innlent Ríkisstjórnin vilji eyðileggja það sem vel er gert „í einum grænum hvelli“ Innlent Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Innlent Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Innlent Voru send í skólasund eftir slysið Innlent Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Fleiri fréttir Ofsahræðsla í lágloftunum: Eldur kviknaði í hreyfli við flugtak Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins Telja réttarmorð framið á hjúkrunarfræðingi sem var dæmdur fyrir barnamorð Uppnám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Úkraínskir drónar brotlentu í Finnlandi Tölur um vaxandi trúrækni ungs fólks byggðar á sandi „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Rændu verkum frönsku meistaranna sem metin eru á milljarða Enn fer ekki saman hljóð og mynd Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Tólf tonnum af Kitkat rænt Íranir búa sig undir árásir landherliðs Milljónir No Kings-mótmælenda: „Það verður að stöðva Trump“ Í haldi lögreglu eftir að hafa ekið á gangandi vegfarendur Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Talið að milljónir mótmæli Bandaríkjaforseta Hútar skjóta eldflaugum að Ísrael Bað auðjöfra um pening: Hét því að halda stríðinu áfram Alvarlegur misbrestur hjá barnavernd Reykjanesbæjar Krónprinsinn sagður hvetja til áframhaldandi aðgerða gegn Íran Ekkert flugvallarverkfall á Spáni á morgun en kannski á mánudag Heuermann sagður ætla að játa Undirskrift Trumps bætt á bandaríska seðla Rasískur reiðilestur Trump: Lýsti Sómölum sem „heimsku“ og þjófóttu fólki Fékk dánaraðstoð í gær eftir harða baráttu við föður sinn Finnskur þingmaður dæmdur fyrir að segja samkynhneigð „þroskaröskun“ Fólkaflokkurinn fram úr Javnaðarflokknum Fimmtán ára stúlka drap tvo fyrir Foxtrot-gengið Sjá meira
Kynferðisafbrot Savile eiga sér tæpast hliðstæðu Breska lögreglan telur mögulegt að fjölmiðlamaðurinn Jimmy Savile hafi verið miðpunktur kynferðisafbrotahrings sem misnotaði börn. Síðan fyrst spurðist af kynferðislegri misnotkun Savile og lögregla hóf rannsókn málsins hefur ábendingum hreinlega rignt inn til lögreglu. 20. október 2012 12:13
Fórnarlömb Jimmy Savile fara fram á rannsókn Fórnarlömb barnaníðingsins Jimmy Savile fara fram á að sérstök rannsókn verði gerð á því hvernig Savile hafi komist hjá handtöku í öll þessi ár. 6. janúar 2014 13:54
Glitti í barnaníðinginn Savile í breska ríkissjónvarpinu BBC biðst afsökunar 22. september 2014 23:30
Yngsta fórnarlamb Savile var átta ára gömul stúlka Yngsta fórnarlamb bresku sjónvarpsstjörnunnar og barnaníðingsins Jimmy Savile var aðeins átta ára gömul stúlka. 11. janúar 2013 10:31