Írska stjórnin fallin Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. febrúar 2016 23:24 Enda Kenny á kjörstað í dag vísir/getty
Enda Kenny, forsætisáðherra Írlands, hefur lýst yfir ósigri í kosningunum sem fram fóru í kvöld. Stjórnmálaskýrendur eru á einu máli; kjósendur eru orðnir langþreyttir á niðurskurði samsteypustjórnarinnar sem Kenny fór fyrir, sem og ójöfnum efnahagsbata. „Það er greinilegt að ríkisstjórn Fine Gael og verkamannaflokksins mun ekki halda völdum,“ sagði Kenny, sem fer fyrir Fine Gael, í samtali við RTE-sjónvarpsstöðina. Útgönguspár höfðu frá upphafi sýnt að stjórn Kenny myndi koma illa út úr kosningunum og tapa mörgum þingsætum, þrátt fyrir að vöxtur írska efnahagsins sé sá mesti í Evrópusambandinu. Hagvöxtur í Írlandi er um 7 prósent og atvinnuleysi fer minnkandi. Kjósendur virðist hafa flykkst að baki óháðum framboðum og þeim sem gagnrýndu niðurskurð sitjandi stjórnvalda hvað harðast. Að sögn AFP er það ekki síst húsnæðisskortur og aukin fátækt sem réði úrslitum í hugum óánægðra kjósenda. Kenny segir að þrátt fyrir að fyrstu niðurstöður hafi verið vonbrigði sé ekki ástæða til að kasta inn handklæðinu strax. Úrslitin muni ráðast á lokametrunum. Talið er að kjörsókn hafi verið um 65 prósent. Þó ekki sé búið að telja öll atkvæðin er búist við því að stjórnarmyndun kunni að reynast erfið. Ef fer sem horfir er talið að tap stjórnar Enda Kenny muni auka þrýstingin á stjórnvöldum í Brussel að endurskoða efnahagsstefnu sína.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Erlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Fleiri fréttir Þúsundir hælisleitenda synt til Ceuta á nokkrum klukkustundum Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Sjá meira