Rio: Manchester United má ekki enda eins og Liverpool Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. febrúar 2016 11:30 Louis van Gaal hættir líklega eftir tímabilið. vísir/getty
Rio Ferdinand, fyrrverandi miðvörður Manchester United, hefur áhyggjur að sitt gamla félag fari í gegnum sömu eyðimerkurgöngu og Liverpool í ensku úrvalsdeildinni gangi næsta stjóraráðning ekki upp. Liverpool hefur aldrei unnið ensku úrvalsdeildina frá stofnun hennar en varð síðast enskur meistari árið 1990. United hefur unnið úrvalsdeildina þrettán sinnum en ekki verið nálægt því síðan Sir Alex Ferguson hætti. Fastlega er búist við að Louis van Gaal láti af störfum hjá United eftir tímabilið og er José Mourinho sterklega orðaður við starfið. Sjálfur hefur hann sagt vinum sínum að hann taki við á Old Trafford. „Það er risastór ákvörðun að fá nýjan mann inn því ef það gengur ekki upp gæti það haft langvarandi afleiðingar,“ segir Ferdinand við Daily Mail. „Við viljum ekki lenda í því sem Liverpool er að ganga í gegnum. Manchester United vill ekki vera svo lengi úti í auðninni þar sem liðið vinnur ekkert og er ekki í baráttu um titla. Það má ekki gerast hjá Manchester United. Vandamálið er núna hver verður valinn,“ segir Rio Ferdinand. Liverpool hefur ekki unnið ensku úrvalsdeildina í 26 ár og aðeins unnið einn titil undanfarinn áratug en það var deildabikarinn árið 2012.5 times winners of the European cup, whats the problem?? https://t.co/vMSb4WGD8n— Jamie Carragher (@Carra23) February 10, 2016
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira