Fótbolti

Leik Kolbeins frestað af ótta við óeirðir

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Frá óeirðunum á þriðjudag.
Frá óeirðunum á þriðjudag. Vísir/AFP
Ekkert verður af því að Kolbeinn Sigþórsson og félagar hans í Nantes spili gegn Bastia í frönsku úrvalsdeildinni um helgina.

Franska knattspyrnusambandið hefur frestað viðureign liðanna þar til í næsta mánuði vegna uppþota sem átti sér stað eftir síðasta heimaleik Bastia, sem er frá eynni Korsíku..

Bastia hafði þá betur gegn Reims, 1-0, en eftir leikinn voru stuðningsmenn félagsins handteknir fyrir að kasta flugeldum að lögreglunni, bæði fyrir og eftir leikinn. Einn stuðningsmannanna hlaut alvarleg meiðsli á auga þegar hann var á flótta undan lögreglunni.

Sólarhringi síðar réðust stuðningsmenn að lögreglustöð á eyjunni og héldu mótmælin áfram bæði á mánudag og þriðjudag.

Í fyrstu var farið fram á að leikurinn yrði færður fram um sex klukkustundir en forráðamenn Bastia höfnuðu því. Nú er áætlað að leikurinn fari fram 9. mars.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×