Grindavík mokar inn verðlaunum Henry Birgir Gunnarsson skrifar 27. ágúst 2026 16:33 Garðar Örn Arnarson leikstjóri og Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur og einn af aðalviðmælendum þáttanna, sitja fyrir svörum í Las Vegas. mynd/aðsend Sigurganga íþróttaheimildarþáttanna Grindavík á kvikmyndahátíðum heldur áfram.
Í þessari viku fengu þættirnir stærstu verðlaunin á einni stærstu kvikmyndahátið sem er helguð íþróttum. Það er Summer League Festival sem fór fram í síðasta mánuði í Las Vegas samhliða NBA Summer League. Hátíðin var nú haldin í þriðja sinn og er samstarfsverkefni NBA, framleiðslufyrirtækis fyrrverandi NBA-meistarans Kevin Garnett, framleiðslufyrirtækis leikarans Mark Wahlberg og kvikmyndaframleiðandans Deon Taylor. Markmið hennar er að draga fram áhrif íþrótta á samfélagið og heiðra framúrskarandi heimilda- og kvikmyndagerð. „Að komast í opinbert val hátíðarinnar telst mikill heiður og að vinna er enn ótrúlegra enda er samkeppnin gríðarlega sterk. Meðal myndanna sem valdar voru í ár eru þrjú verk þar sem Michael Jordan er í hlutverki viðmælanda. Þá er Charles Barkley framkvæmdaframleiðandi einnar myndarinnar og leikstjóri annarrar er jafnframt einn af framleiðendum hinnar margverðlaunuðu Netflix-seríu The Last Dance um Jordan. Heimildarmynd Amazon Prime um Lakers goðsögnina Jerry West var ein myndin til að mynda. Samkeppnin í flokknum var því gríðarleg,“ segir í tilkynningu frá framleiðendum. Grindavík er nú búið að sópa til sín sextán verðlaunum. Tveimur á Íslandi og fjórtán á erlendri grundu. Þættirnir eru aðgengilegir á Sýn+.
Bónus-deild karla Bónus-deild kvenna UMF Grindavík Grindavík Tengdar fréttir Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Ég fór í viðtal við Víkurfréttir árið 1999 þar sem ég sagðist ætla í NBA þegar ég yrði stór. Ég sá aðkomu mína að deildinni ekki alveg svona en ætli markmiðinu sé ekki nokkurn veginn náð,“ segir Garðar Örn Arnarson, leikstjóri þáttanna Grindavík. 1. júlí 2026 13:02 Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfuboltamaðurinn og Íslandsmeistarinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu. 17. júní 2026 15:12 Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Sjá meira
Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Ég fór í viðtal við Víkurfréttir árið 1999 þar sem ég sagðist ætla í NBA þegar ég yrði stór. Ég sá aðkomu mína að deildinni ekki alveg svona en ætli markmiðinu sé ekki nokkurn veginn náð,“ segir Garðar Örn Arnarson, leikstjóri þáttanna Grindavík. 1. júlí 2026 13:02
Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfuboltamaðurinn og Íslandsmeistarinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu. 17. júní 2026 15:12