Ógnvænlegir yfirburðir PSG sem setti nýtt met Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. febrúar 2016 10:45 Zlatan og félagar tapa ekki leik í Frakklandi. vísir/getty
Paris Saint-Germain heldur áfram að drottna yfir frönsku 1. deildinni í fótbolta, en liðið vann Lorient í gærkvöldi á heimavelli sínum í París, 3-1. Edison Cavani, sem hefur verið orðaður við Manchester United, skoraði fyrsta mark PSG áður en gestirnir jöfnuðu metin. Mörk frá Zlatan Ibrahimovic og Layvin Kurzawa tryggðu meisturunum svo þrjú stig. Með sigrinum í gær setti Parísarliðið nýtt met með því að tapa ekki í 33 leikjum í röð í frönsku 1. deildinni, en liðið hefur verið ósnertanlegt undanfarin misseri. Yfirburðir PSG eru svo miklir að eftir aðeins 24 umferðir af 38 er liðið með 24 stiga forskot á Monaco á toppi deildarinnar. Mun styttra er fyrir Monaco í fallbaráttuna heldur en upp í toppsætið því ekki munar nema 15 stigum á Monaco í öðru sætinu og Montpellier sem er með 25 stig í 18. sæti deildarinnar. PSG er ekki enn búið að tapa leik í deildinni í vetur. Það er búið að vinna 21 leik og gera þrjú jafntefli, en næst koma Monaco, Nice og Caen öll með ellefu sigra. Ef fram heldur sem horfir verður Parísarliðið meistari jafnvel í næsta mánuði.
Fótbolti Mest lesið Landsliðsmaður handtekinn í London Enski boltinn Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Enski boltinn Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Enski boltinn „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Íslenski boltinn Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Allt í steik hjá Real og tveir sáu rautt Fótbolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 118-67 | Toppliðið tekið til slátrunar Körfubolti Höjlund afgreiddi Juve og kom Napoli á toppinn Fótbolti Ótrúlegir yfirburðir Noregs og Danir enduðu líka á toppnum Handbolti Fleiri fréttir Landsliðsmaður handtekinn í London „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Allt í steik hjá Real og tveir sáu rautt Höjlund afgreiddi Juve og kom Napoli á toppinn Sér bara eina leið fyrir Salah: „Komi og biðjist innilega afsökunar“ Kristall skoraði í sögulegum sigri á FCK Guéhi hetjan og Palace upp í fjórða sæti Glódís og Bayern að stinga af eftir stórsigur Benítez enn með Sverri á bekknum og það borgaði sig ekki Tómas á toppnum eftir sigur á skoska risanum Hópslagsmál á vellinum: „Áður en ég vissi af flugu hnefar út um allt“ Hálfíslenskt mark í sigri Fiorentina Hömrunum heitt í hamsi eftir dramatík Owen um Salah: „Skil hvernig þér líður“ Karólína lagði upp en Hlín meiddist Íslenskir Púlarar í sárum: „Takk fyrir allt Mósi minn“ Kominn með nóg og vill fara frá United Fyrrum eigandi Liverpool látinn „Ég sem faðir er ekkert eðlilega stoltur af honum“ Skýtur á Salah: „Lætur þetta allt snúast um sig“ Útilokar ekki að koma heim Sjáðu mörkin: Guimaraes beint úr horni, dramatík hjá Liverpool og öll hin Messi og Miami MLS-meistarar Sprengja frá Salah: Gerður að blóraböggli og brostið samband við Slot „Erfitt þegar þú færð á þig mörk án þess að fá á þig færi“ Hádramatík í sex marka leik Hildur á skotskónum í Barcelona Aftur aflýst hjá Andra vegna bleytu Everton í fimmta sæti og langþráður sigur Spurs Varnarmenn City í stuði og aðeins tvö stig í Arsenal Sjá meira