Tottenham upp í 2. sætið | Mikilvægir sigrar hjá Newcastle og Aston Villa Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. febrúar 2016 17:15 Kieran Trippier fagnar því að hafa komið Tottenham upp í 2. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Vísir/Getty
Sjö leikjum er lokið í ensku úrvalsdeildinni í dag.Leicester City gerði góða ferð á Etihad og vann 1-3 sigur á Manchester City í fyrsta leik dagsins.Liverpool missti niður tveggja marka forskot gegn Sunderland á heimavelli og Gylfi Þór Sigurðsson skoraði mark Swansea í 1-1 jafntefli gegn Crystal Palace. Tottenham er komið upp í 2. sæti deildarinnar en Spurs vann 1-0 sigur á Watford á White Hart Lane. Hægri bakvörðurinn Kieran Trippier var hetja Tottenham en hann skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu. Þetta var fjórði sigur Tottenham í röð en liðið er nú með 48 stig í 2. sætinu, fimm stigum á eftir toppliði Leicester. Everton vann öruggan 0-3 sigur á Stoke City á útivelli. Lærisveinar Roberto Martínez gengu frá leiknum í fyrri hálfleik en eftir 42. mínútna leik var staðan orðin 0-3. Romelu Lukaku (víti), Seamus Coleman og Aaron Lennon skoruðu mörkin. Everton er í 7. sæti deildarinnar en Stoke er komið niður í 11. sætið eftir þrjá tapleiki í röð. Serbneski framherjinn Aleksandar Mitrovic tryggði Newcastle United mikilvægan 1-0 sigur á West Brom í botnbaráttunni. Newcastle komst með sigrinum upp úr fallsæti en West Brom er farið að nálgast botnliðin eftir slakt gengi að undanförnu. Þá vann Aston Villa lífsnauðsynlegan 2-0 sigur á Norwich City á Villa Park. Jolean Lescott og Gabriel Agbonlahor gerðu mörk Villa sem er enn í erfiðri stöðu, með aðeins 16 stig í botnsætinu, átta stigum frá öruggu sæti.Úrslit dagsins:Man City 1-3 Leicester 0-1 Robert Huth (3.), 0-2 Riyad Mahrez (48.), 0-3 Huth (60.), 1-3 Sergio Agüero (87.).Liverpool 2-2 Sunderland 1-0 Roberto Firmino (60.), 2-0 Adam Lallana (70.), 2-1 Adam Johnson (82.), 2-2 Jermain Defoe (89.).Swansea 1-1 Crystal Palace 1-0 Gylfi Þór Sigurðsson (13.), 1-1 Scott Dann (47.).Tottenham 1-0 Watford 1-0 Kieran Trippier (64.).Stoke 0-3 Everton 0-1 Romelu Lukaku, víti (11.), 0-2 Seamus Coleman (28.), 0-3 Aaron Lennon (42.).Newcastle 1-0 West Brom 1-0 Aleksandar Mitrovic (32.).Aston Villa 2-0 Norwich 1-0 Jolean Lescott (45.), 2-0 Gabriel Agbonlahor (51.).
Enski boltinn Mest lesið Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Forsetinn tjáir sig um niðurbrotinn Alvarez: „Þykir þetta mjög miður“ Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Handbolti Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Enski boltinn Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Fleiri fréttir Gætu spilað sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Arsenal Selja Enzo ef rétt verð fæst fyrir hann Zetterer á leið í læknisskoðun hjá Leeds Dregið í Evrópudeildirnar og enski boltinn heldur áfram að rúlla Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Sjá meira