Hver af þessum sex verður kosinn besti leikmaður mánaðarins í enska boltanum? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2016 23:00 Roberto Firmino skoraði fjögur mörk fyrir Liverpool í janúar. Vísir/Getty
Sex leikmenn koma til greina sem besti leikmaður janúarmánaðar í ensku úrvalsdeildinni en Gylfi Þór Sigurðsson er ekki tilnefndur þrátt fyrir sinn besta mánuð í langan tíma. Þeir sem koma til greina sem leikmaður fyrsta mánaðar ársins eru Sergio Aguero hjá Manchester City og Roberto Firmino hjá Liverpool auk þeirra Dele Alli hjá Tottenham, Kasper Schmeichel hjá Leicester City, Virgil van Dijk hjá Southampton og Jermain Defoe hjá Sunderland. Sergio Aguero hefur náð sér af meiðslunum og er búinn að vera fanta formi í fyrstu leikjum ársins. Hann var með fimm mörk og eina stoðsendingu í fjórum deildarleikjum. Aguero fær mikla samkeppni frá Roberto Firmino sem skoraði tvennu á móti bæði Arsenal og Norwich og var alls með fjögur mörk og eina stoðsendingu í fjórum leikjum. Kasper Schmeichel hélt þrisvar sinnum hreinu í fjórum leikjum Leicester City í mánuðinum og kemur til greina sem besti leikmaðurinn. Virgil van Dijk, varnarmaður Southampton, Jermain Defoe, framherji Sunderland og Dele Alli, miðjumaður Tottenham, eru einnig tilnefndir en þykja þó ekki líklegir til að hljóta hnossið. Jamie Vardy (október og nóvember) hefur þegar verið tvisvar sinnum valinn besti leikmaður mánaðarins á tímabilinu en hann kemur ekki til greina nú. Hinir sem hafa fengið verðlaunin á þessari leiktíð eru þeir André Ayew hjá Swansea City (ágúst), Anthony Martial hjá Manchestet United (september) og Odion Ighalo hjá Watford (desember).
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Enski boltinn Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira