Carlos Tevez skallaður í "vináttuleik" | Myndband Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. janúar 2016 10:00 Carlos Tevez. Vísir/Getty
Það var lítil vinátta í gangi þegar River Plate vann 1-0 sigur á Boca Juniors í vináttuleik erkifjenda argentínska fótboltans um helgina. Alls voru fimm leikmenn reknir útaf og leikmenn Boca Juniors voru orðnir átta inn á vellinum þegar River Plate fékk sín tvö rauð spjöld. Tímablið er ekki í gangi og liðin eru því að undirbúa sig fyrir komandi átök. Leikir Boca Juniors og River Plate er einn þekktasti nágrannaslagur í heiminum og hitinn verður oft ekki meiri á milli tveggja liða á fótboltavellinum. Patricio Loustau, dómari leiksins, dæmdi 40 brot í leiknum, gaf fimm rauð spjöld og níu gul spjöld. Undir lokin varð allt vitlaust. Carlos Tevez, fyrrum leikmaður West Ham, Manchester United og Manchester City, var skallaður í leiknum og fékk Jonathan Maidana hjá River Plate rautt spjald fyrir þann gjörning. „Hvorugur okkar hegðaði sér vel," sagði Carlos Tevez um samskipti hans og Jonathan Maidana sem enduðu með fyrrnefndum hætti en Sky Sports fjallaði um leikinn. Leonardo Pisculichi, sem fékk líka rautt spjald, skoraði sigurmarkið í leiknum en það kom úr vítaspyrnu á 17. mínútu sem dæmd var á Carlos Tevez fyrir að handleika knöttinn. Carlos Tevez og félegar í Boca Juniors eiga í miklum vandræðum með sig þessa dagana því fjórum dögum áður voru tveir leikmenn liðsins reknir af velli í 4-2 tapi á móti Racing Club. „Við erum búnir að fá fimm rauð spjöld á fjórum dögum. Við verðum að fara þroskast," sagði Carlos Tevez. Hér fyrir neðan má sjá svipmyndir frá þessum ótrúlega vináttulausa vináttuleik en atvikið með Carlos Tevez kemur eftir rétt rúmar níu mínútur.
Fótbolti Mest lesið Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Fleiri fréttir Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sjá meira