Innlent

Stígamót bjóða upp á þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Í lok September verður boðið upp á ókeypis viðtöl hálfsmánaðarlega á Ísafirði.
Í lok September verður boðið upp á ókeypis viðtöl hálfsmánaðarlega á Ísafirði. Vísir
Stígamót hafa fært úr kvíarnar og bjóða nú upp á þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Liðsmaður Stígamóta mun fara til Ísafjarðar hálfsmánaðarlega, þannig að íbúar á norðanverðum Vestfjörðum geti nýtt sér þjónustu Stígamóta í heimabyggð.

Verkefnið hefur það að markmiði að veita fólki á landsbyggðinni tækifæri á að nýta sér þjónustu Stígamóta í sinni heimabyggð. „Við höfum alltaf verið meðvituð um það hér á Stígamótum að kynferðisofbeldi á sér stað úti um allt land og að þörfin er alls staðar sú sama,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta.  

Samtökin hafi í gegn um tíðina reynt að fá fólk úti á landi til að setja á laggirnar hliðstæða þjónustu og Stígamót veita. Það tókst meðal annars á Akureyri en hefur hins vegar ekki tekist alls staðar. „Ástæðan er ekki sú að fólk sé betra eða verra en við, eða kunni meira eða minna, heldur að í litlum samfélögum er mjög erfitt að fara til eins nágranna út af einhverjum öðrum nágranna, eða skyldleika eða eitthvað slíkt,“ segir Guðrún. 

Þannig hafi þolendur leitað til Stígamóta þrátt fyrir að boðið væri upp á viðlíka þjónustu í heimbyggð þeirra. „Þá áttuðum við okkur á því að kannski væri sniðugt að ráðgjafar frá okkur myndu fljúga eða sigla eða keyra á fleiri staði og fara svo í burtu með leyndarmálin, taka ekki þátt í þessum samfélögum.“ 

Guðrún segir að þar sem Stígamót hafi boðið upp á þjónustu sína á landsbyggðinni hafi aðsóknin alltaf verið meiri en þau hafi geta annað. Kynferðisofbeldi viðgangist alls staðar. „Eftir því sem við best vitum þá sleppur ekkert samfélag, og enginn hópur, enginn skóli, enginn kaupstaður, ekkert sveitarfélag. Þetta virðist fylgja okkur mönnunum.“ 

Í dag bjóða Stígamót upp á þjónustu í Reykjavík og á Egilsstöðum. Í lok September verður boðið upp á ókeypis viðtöl hálfsmánaðarlega á Ísafirði. „Ég mun fara á Ísafjörð og fólk getur pantað tíma hér á Stígamótum. Þá munum við bjóða upp á stuðningsviðtöl fyrir brotaþola kynferðisofbeldis og aðstandendur ef þarf,“ segir Karen Eiríksdóttir, ráðgjafi hjá stígamótum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×