Stígamót bjóða upp á þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins Nadine Guðrún Yaghi skrifar 13. september 2016 21:02 Í lok September verður boðið upp á ókeypis viðtöl hálfsmánaðarlega á Ísafirði. Vísir
Stígamót hafa fært úr kvíarnar og bjóða nú upp á þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. Liðsmaður Stígamóta mun fara til Ísafjarðar hálfsmánaðarlega, þannig að íbúar á norðanverðum Vestfjörðum geti nýtt sér þjónustu Stígamóta í heimabyggð. Verkefnið hefur það að markmiði að veita fólki á landsbyggðinni tækifæri á að nýta sér þjónustu Stígamóta í sinni heimabyggð. „Við höfum alltaf verið meðvituð um það hér á Stígamótum að kynferðisofbeldi á sér stað úti um allt land og að þörfin er alls staðar sú sama,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. Samtökin hafi í gegn um tíðina reynt að fá fólk úti á landi til að setja á laggirnar hliðstæða þjónustu og Stígamót veita. Það tókst meðal annars á Akureyri en hefur hins vegar ekki tekist alls staðar. „Ástæðan er ekki sú að fólk sé betra eða verra en við, eða kunni meira eða minna, heldur að í litlum samfélögum er mjög erfitt að fara til eins nágranna út af einhverjum öðrum nágranna, eða skyldleika eða eitthvað slíkt,“ segir Guðrún. Þannig hafi þolendur leitað til Stígamóta þrátt fyrir að boðið væri upp á viðlíka þjónustu í heimbyggð þeirra. „Þá áttuðum við okkur á því að kannski væri sniðugt að ráðgjafar frá okkur myndu fljúga eða sigla eða keyra á fleiri staði og fara svo í burtu með leyndarmálin, taka ekki þátt í þessum samfélögum.“ Guðrún segir að þar sem Stígamót hafi boðið upp á þjónustu sína á landsbyggðinni hafi aðsóknin alltaf verið meiri en þau hafi geta annað. Kynferðisofbeldi viðgangist alls staðar. „Eftir því sem við best vitum þá sleppur ekkert samfélag, og enginn hópur, enginn skóli, enginn kaupstaður, ekkert sveitarfélag. Þetta virðist fylgja okkur mönnunum.“ Í dag bjóða Stígamót upp á þjónustu í Reykjavík og á Egilsstöðum. Í lok September verður boðið upp á ókeypis viðtöl hálfsmánaðarlega á Ísafirði. „Ég mun fara á Ísafjörð og fólk getur pantað tíma hér á Stígamótum. Þá munum við bjóða upp á stuðningsviðtöl fyrir brotaþola kynferðisofbeldis og aðstandendur ef þarf,“ segir Karen Eiríksdóttir, ráðgjafi hjá stígamótum.
Mest lesið Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent Stúlkan er fundin Innlent „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Erlent Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Innlent Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Innlent Fleiri fréttir Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Hnakkrifust á bak við luktar dyr Stytting hringvegarins sú mesta á þessari öld Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Sjá meira