„Þroskuð“ 13 ára stúlka tapar nauðgunarmáli í Svíþjóð Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2015 13:01 Stúlkan hafði strokið frá heimili sínu og hafi verið peningalaus og á götunni. Mynd tengist frétt ekki beint. Vísir/Getty
Sænsk stúlka sem sakaði 27 ára gamlan mann um að nauðga sér þegar hún var þrettán ára hefur tapað máli sínu. Dómarar töldu að maðurinn hefði ekki getað áttað sig á því að stúlkan væri undir aldri. Hann hefur nú verið sýknaður í tveimur dómstigum í Svíþjóð, en lögmaður stúlkunnar segist ætla með málið fyrir Hæstarétt. Dómarar sögðu að líkami hennar hefði verið svo „þroskaður“ að maðurinn hefði ekki áttað sig á að hún væri ekki orðin 15 ára gömul. Samkvæmt lögum í Svíþjóð teljast kynmök við barn sem er undir fimmtán ára aldri sem nauðgun. Þó stendur í lögunum að ákærði verði að vita, eða hafa ástæðu til að telja að barnið sé undir aldri. Á vef Aftonbladet kemur fram að stúlkan hafði strokið frá heimili sínu og hafi verið peningalaus og á götunni. Maðurinn fann hana þar sem hún lá á bekk nærri heimili hans og bauð henni inn í mat. Í fyrstu neitaði maðurinn að hún hefði komið inn á heimili hans, en lögreglan fann DNA úr honum í nærbuxum hennar. Hann hélt því fram að hún hafi aldrei sagt til um aldur sinn og hann taldi hana hafa verið 15 til 17 ára gamla. Dómararnir skoðuðu myndbönd af skýrslutökum stúlkunnar og sögðu að líkami hennar „væri svo þroskaður“ að maðurinn hafi ekki haft ástæðu til að ætla að hún væri ekki orðin kynþroska. Þá töldu dómararnir að talsmáti hennar og framkoma gæfi ekki í skyn að hún væri einungis þrettán ára gömul. Maðurinn var því sýknaður af nauðgun. Samkvæmt vefnum Thelocal hefur úrskurðurinn valdið fjaðrafoki á samfélagsmiðlum í Svíþjóð. Goran Landerdahl, lögmaður stúlkunnar, segir þó að hann muni fara með málið fyrir Hæstarétt. Hann sagði að draga eigi til ábyrgðar alla þá sem hafi kynmök við einstaklinga sem virðist vera á mörkunum með að hafa náð aldri, án þess að kanna aldur þeirra nánar.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Innlent Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur Innlent Fleiri fréttir Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Sjá meira