Sér fram á enn verri neyð Guðsteinn Bjarnason skrifar 24. mars 2015 06:00 Kyung-Wha Kang, aðstoðarframkvæmdastjóri Samæfingarskrifstou mannúðarmála hjá Sameinuðu þjóðunum kom í stutta heimsókn hingað til lands í gær. Vísir/GVA „
Á heildina litið eru það held ég um 100 milljónir manna sem þurfa á mannúðaraðstoð að halda um heim allan, og fjárþörfin er metin á um 18 milljónir dala,“ segir Kyung-Wha Kang, yfirmaður Samæfingarskrifstofu mannúðaraðstoðar hjá Sameinuðu þjóðunum, sem var hér á landi í stuttri heimsókn í gær. Hún segir þörfina fyrir fjárframlög hafa verið að hækka, en það sé ekki vegna þess að gjafaframlögin hafi dregist saman heldur hafi fjárþörfin aukist hraðar en framlögin. „Þannig hefur bilið haldið áframm að breikka. Og það getur ekki gengið til lengdar. Það sem við þurfum er því í fyrsta lagi að finna pólitískar lausnir á þessum miklu átökum. Ekkert bendir hins vegar til þess að þær lausnir séu í sjónmáli. Að minnsta kosti ekki á þessu ári,“ segir Kang. „Auk þess eru líkur á því að nýjar þarfir spretti upp í Jemen eða Líbíu, svo dæmi séu tekin. Þannig að allt bendir til þess að þörfin fyrir aðstoð muni aukast á þessu ári.“ Hún segir þess vegna nauðsynlegt að fara nýjar leiðir, hugsa út fyrir boxið, til að afla fjár til mannúðaraðstoðar. Ban Ki Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hafi í þessum tilgangi meðal annars efnt til samráðsfunda með sérfræðingum, þar á meðal úr fjármálaheiminum og einkageiranum, til að finna nýjar leiðir til fjármögnunar. Verst er ástandið í fjórum stríðshrjáðum löndum: Sýrlandi, Írak, Mið-Afríkulýðveldinu og Suður-Súdan. Um 80 prósent af fjárþörfinni nú sé í þessum fjörum löndum. „Það þýðir samt ekki að neyðarástand ríki ekki víðar,“ segir hún og nefnir Austur-Kongó, Afganistan og Sómalíu sem dæmi um lönd þar sem ástandið hefur lengi verið mjög erfitt. Í Úkraínu hefur ástand almennings einnig haldið áfram að versna þrátt fyrir samkomulag um vopnahlé sem gert var í vetur. „Það mun ekki lagast að ráði fyrr en nokkuð örugg þróun hefst í áttina að friði. Við höfum verið að veita aukna mannúðaraðstoð bæði á svæðum sem uppreisnarmenn hafa á sínu valdi og einnig á svæðum sem stjórnin ræður yfir, en þarna þurfti enga mannúðaraðstoð áður en átökin hófust.“
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Sjá meira