Tæplega fjörutíu létust í troðningi í nótt Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 1. janúar 2015 11:37 Fjölmargir slösuðust auk þeirra sem létu lífið. Vísir/AP
Tæplega fjörutíu létust og tæplega fimmtíu slösuðust í fjölmennum nýársfögnuði í Sjanghæ í Kína í gær. Rétt fyrir miðnætti tók hópurinn sem hugðist fagna nýja árinu við Huangpu á að ryðjast svo tugir manna urðu undir. „Það var einhver að rífa í hár mitt að aftan, brjótast um og anda þungt,“ sagði Zuo Zhijian sem var á staðnum en hann sagðist ekki geta hafa hreyft fæturnar vegna troðnings. „Stúlka fyrir framan mig hélt örvæntingarfull í mig, bað um hjálp og sagðist ekki þola við lengur. Það var líka stúlka alveg hreyfingarlaus fyrir neðan mig.“ CNN greinir frá. Zuo segir afleiðingarnar hafa verið svo hrikalegar að nokkrir hinna látnu hafi verið óþekkjanlegir vegna áverka. Samkvæmt öðru vitni, Xiao Ji, grétu sumir á meðan aðrir reyndi að lífga við meðvitundarlaus fórnarlömb ruðningsins. Hann segir lögreglumenn hafa verið á staðnum. Yfirvöld rannsaka nú hvað orsakaði ruðninginn en ekki er fyllilega ljóst hvað gerðist. Samkvæmt CNN hélt ónefnt vitni því fram að lætin hafi hafist þegar afsláttarmiðum sem litu út eins og dollaraseðlar var fleygt af þriðju hæð húss við hópinn. En þetta hefur ekki fengist staðfest af öðrum vitnum. Yfirvöld á staðnum höfðu fært nýársfögnuðinn á nýjan, lokaðri stað eftir umferðaröngþveiti ársins áður. Fjöldi fólks kom saman á slysstaðnum í dag til þess að votta samúð sína með blómum.
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Sjá meira