Braskarar bættu Jafeti farsímann sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 22. september 2015 21:00 Jafet er í skýjunum með nýja símann. mynd/anna lovísa
Hinn níu ára gamli Jafet hefur tekið gleði sína á ný, eftir að hafa týnt farsíma sínum þegar ferðaþjónusta fatlaðra skildi hann í síðustu viku eftir á bílaplani við matvöruverslun í nágrenni við heimili hans, í stað þess að aka honum heim. Hann hefur leitað símans logandi ljósi síðan þá. Bróðir Jafets, Aron Vignir, auglýsti eftir símanum á Facebook, en góðhjartaðir notendur hópsins Brask og brall ákváðu að taka málin í sínar hendur og safna fyrir nýjum farsíma. „Við áttum alls ekki von á svona viðbrögðum og í raun langt frá því sem við ætluðum okkur. Aron Vignir setti þessa auglýsingu inn í þeirri von um að einhver hefði fundið símann, því síminn er í miklu uppáhaldi hjá Jafet. Þá var einn sem stakk upp á því að hver og einn myndi leggja inn þúsund krónur fyrir nýjum síma og þannig gekk þetta koll af kolli,“ segir Anna Lovísa Jónsdóttir, móðir Arons Vignis og Jafets. Alls söfnuðust 16.500 krónur og fóru þau mæðgin í gær og keyptu nýjan síma. „Við fórum í gær og keyptum alveg eins, nema hvítan. Hinn var svartur. Jafet er alveg í skýjunum en hann var alla helgina verulega sár. Núna hins vegar er hann bara búinn að vera í því að hringja í ættingjana,“ segir Anna. „Þetta er bara svo gaman. Það eru allir svo góðhjartaðir og vildu allt fyrir hann gera. Ég er búin að þakka öllum fyrir að bregðast svona við.“Sjá einnig: Strætó: Hann er sem betur fer ekki meira einhverfur en það að hann rataði heim Sagt var frá máli drengsins í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Jafet er einhverfur og getur ekki gengið í venjulegan grunnskóla, heldur er hann í Vogaskóla í sérstakri einhverfudeild. Til að komast í og úr skóla frá heimili sínu í Árbæ nýtir hann sér ferðaþjónustu fatlaðra. Skýrt er tekið fram í gögnum Strætó að aka eigi drengnum til og frá heimili hans, en var í síðustu viku skilinn eftir á bílaplani við Krónuna í Árbæ. Anna Lovísa segir atvikið hafa tekið nokkuð á son sinn, en viðtalið við hana, sem og framkvæmdastjóra Strætó, má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Mest lesið Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Fleiri fréttir Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Sjá meira