Birta myndband af handtöku Söndru Bland Atli Ísleifsson skrifar 22. júlí 2015 10:58 Sandra Bland var handtekin þann 10. júlí síðastliðinn eftir að lögregla stöðvaði bíl hennar í kjölfar þess að hún hafði ekki gefið stefnuljós. Vísir/AFP
Lögregluyfirvöld í Texas hafa birt myndband af handtöku Söndru Bland, þeldökkrar konu, sem lést þremur dögum síðar í varðhaldi. Bland var handtekin þann 10. júlí síðastliðinn eftir að lögregla stöðvaði bíl hennar í kjölfar þess að hún hafði ekki gefið stefnuljós. Á myndbandinu má sjá þegar til harðra orðaskipta kemur milli lögreglumannsins og Bland. Dánardómstjóri segir að Bland hafi hengt sig í klefa sínum, en fjölskylda hennar hefur farið fram á að óháð réttarkrufning verði framkvæmd.Sandra Bland.Vísir/AFPÍ frétt breska ríkisútvarpsins segir að fulltrúar yfirvalda í Texas og alríkislögreglunnar FBI rannsaki báðir dauða Bland. Á myndbandinu sést hvernig lögreglumaðurinn hyggst sekta Bland og biður hana svo um að drepa í sígarettu sinni, sem hún neitar að gera. Þegar hún neitar að fara úr bílnum reynir lögreglumaðurinn að draga hana út, beinir taser-byssu að henni og hótar að „kveikja í“ henni. Að lokum fer Bland út úr bílnum og fara þau úr mynd, en hljóðskráin bendir til að til líkamlegra átaka hafi komið milli lögreglumannsins og Bland. Lögreglumaðurinn hefur sjálfur sagt að Bland hafi sparkað í sig, en hann er í leyfi frá störfum á meðan málið er til rannsóknar. Fjölmargir hafa efast um áreiðanleika myndbandsins og segja augljóst að það hafi verið klippt. Sjá má myndbandið í heild sinni að neðan auk styttri útgáfu.
Mest lesið Nokkrir handteknir vegna mannsláts Innlent Fundu níu skipsflök og ummerki um snjóflóð á hafsbotni við Siglufjörð Fréttir Breyting á geðheilsu og líkamlegu þreki Innlent Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Erlent Mikill viðbúnaður lögreglu í Vogunum Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Sækja slasaðan mann að Háafossi Innlent Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Rannsaka manndráp á Kársnesi Innlent Maðurinn sem lögreglan leitaði að er fundinn Innlent Fleiri fréttir Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Vísa máli Fauci til dómstóla Sakar lekamenn um landráð vegna „rangra“ frétta „Fagmenn“ smíðuðu og flugu sjálfsprengidrónanum í Leipzig Áhrifavaldur myrtur í beinni Ebóla að stinga viðbragðsaðila í verkfalli af Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Sjá meira