Fimmtán manns bjargað á lífi guðsteinn bjarnason skrifar 5. febrúar 2015 07:30 Björgunarfólk hraðaði sér að vélinni, sem stóð upp úr ánni að litlum hluta. fréttablaðið/EPA
Síðdegis í gær hafði tekist að bjarga fimmtán manns á lífi úr farþegaflugvél sem fórst í Taívan í gær. Óttast var að 43 hefðu farist þegar vélin hrapaði í höfuðborginni Taípei. Ekki er vitað hvað olli slysinu, en vélin var á vegum taívanska flugfélagsins TransAsia. Í taívönsku útvarpi var aftur og aftur spiluð upptaka af síðustu samskiptum flugmanna við flugturn, þar sem flugmaður hrópaði þrisvar neyðarorðið „Mayday“ og „bilun í hreyfli“. Upptakan gaf þó enga vísbendingu um það hvað komið hefði fyrir. „Það er of snemmt núna að velta því fyrir sér hvort það hafi verið vélin eða áhöfnin,“ sagði Greg Waldron, ritstjóri flugtímaritsins Flightglobal í Singapúr. Nokkrir vegfarendur tóku myndbönd af slysinu, sem sýnd voru í fjölmiðlum víða um heim í gær. Þar sést vélin koma fljúgandi í áttina að brú, snúast svo nokkuð skyndilega á hlið, reka vænginn í bifreið og brúarhandrið og hrapa síðan í Keelung-ána. Um borð í vélinni voru 58 manns. Flestir farþeganna voru frá Kína. Vélin var af gerðinni ATR 72, smíðuð í Frakklandi og á Ítalíu. Síðasta sumar fórust tugir manna þegar önnur vél sömu gerðar, frá sama taívanska flugfélaginu, hrapaði.
Mest lesið „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Erlent Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Fleiri fréttir Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Vilja veita þúsundum sem dvelja ólölega á Spáni dvalarleyfi Ná saman um myndun minnihlutastjórnar í Hollandi Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Dómari stöðvar brottflutning Liam og föður hans Bandaríkin hyggja á heræfingar í Mið-Austurlöndum Svíar líta til kjarnorkuvopna Sjá meira