Umhverfistjón gæti orðið langvarandi Guðsteinn Bjarnason skrifar 14. ágúst 2015 07:00 Öll mannvirki, bifreiðar og annað gjöreyðilagðist í tveggja kílómetra radíus frá sprengingunum. vísir/EPA
Að minnsta kosti fimmtíu manns létu lífið í sprengingunum í Tianjin á miðvikudag. Meira en 700 manns voru fluttir á sjúkrahús og meira en sjötíu af þeim voru taldir lífshættulega slasaðir. Meðal hinna látnu voru sautján slökkviliðsmenn. Vopnaðir hermenn voru sendir á vettvang ásamt sérfræðingum hersins í viðbrögðum við kjarnorkuslysum og öðrum eiturefnaslysum. Að minnsta kosti þúsund slökkviliðsmenn unnu jafnframt í gær að því að slökkva eldana, sem enn loguðu á svæðinu. Umhverfissamtökin Greenpeace segja hætt við því að áhrifin af eiturefnum, sem þarna voru geymd, geti áfram valdið fólki á þessum slóðum heilsutjóni og haft margvísleg áhrif á umhverfið. Sprengingarnar voru tvær. Þær urðu um klukkan hálftólf að kvöldi að staðartíma og liðu einungis fáar sekúndur á milli þeirra. Kínverskir jarðskjálftafræðingar hafa sagt að sprengikrafturinn í fyrri sprengingunni hafi jafngilt þremur tonnum af sprengiefninu TNT, en sú seinni var á stærð við 21 tonn af TNT. Eyðileggingin var gífurleg. Í allt að tveggja kílómetra radíus frá sprengingunum voru öll mannvirki, bifreiðar og aðrir hlutir gjörónýtir. Þar á meðal voru um tvö þúsund nýjar Volkswagen-bifreiðar. Sprengingarnar urðu í gámum í vöruhúsi við höfnina, þar sem geymd voru hættuleg efni, þar á meðal ýmis eldfim efni unnin úr jarðolíu eða jarðgasi. Að sögn kínversku fréttastofunnar Xinhua greindust eiturgufur í andrúmsloftinu í 500 metra fjarlægð frá sprengingunum, en þegar komið var í tveggja kílómetra fjarlægð greindust engar slíkar lofttegundir. Kínversk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að gefa fjölmiðlum ekki óheftan aðgang að upplýsingum um það sem gerðist. Stjórnvöld hafa einnig verið gagnrýnd fyrir að hafa ekki nógu gott eftirlit með hættulegum efnum í iðnaði. Guo Shengkun, almannavarnaráðherra Kína, sagði hins vegar að stjórnvöld verði að draga lærdóm af þessu og gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir að eitthvað svipað gerist aftur. Fimmtán milljónir manna búa í hafnarborginni Tianjin og þar er ein af mikilvægustu vöruflutningahöfnum landsins.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Fleiri fréttir Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein af hinstu óskum Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Sjá meira